5 ára fangelsi fyrir fjárkúgun
Kviðdómur í Old Baily í Lundúnum fann í dag tvo karlmenn seka um tilraun til að reyna að kúga fé út úr karlmanni í bresku konungsfjölskyldunni. Voru mennirnir dæmdir í 5 ára fangelsi.
Mennirnir heita Sean McGuigan, sem er 41 árs gamall Íri, og Ian Strachan, 31 árs gamall Englendingur, öðru nafni Paul Adalsteinsson en hann er af íslenskum ættum.
Sakborningarnir neituðu báðir sök. Þeir voru handteknir í september í fyrra á hóteli í Lundúnum og ákærðir í kjölfarið fyrir að hafa krafist þess að fá greidd 50 þúsund pund en ella myndu þeir birta myndband þar sem systrursonur Elísabetar Englandsdrottningar var borinn ýmsum sökum, þar á meðal að hafa neytt fíkniefna og átt kynmök við einkaþjón sinn.
Í réttarhöldunum kom fram, að mennirnir höfðu áður reynt að selja breskum fjölmiðum segulbandsupptökur og myndskeið sem tengdust málinu.
Dómar fyrir fjárkúgun eru sjaldgæfir í Bretlandi. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Mark Carroll hjá breska ríkissaksóknaraembættinu, að þótt sakborningarnir hafi haldið því fram að þeir hefðu verið að vernda hagsmuni fórnarlambsins hafi kviðdómurinn hafnað skýringum þeirra og tekið undir þær fullyrðingar saksóknara að mennirnir hefðu aðeins haft áhuga á peningum.
Afi Strachans flutti frá Íslandi til Englands á fyrri hluta síðustu aldar. Foreldrar Ians skildu er hann var níu ára og þá tók hann upp ættarnafn enskrar móður sinnar. Hefur hann fengist við ýmislegt um dagana að eigin sögn, meðal annars fasteignasölu, en fyrir nokkrum árum fluttist hann til Lundúna ásamt móður sinni. Fór hann þá að stunda félagsskap ríka fólksins og er sagður hafa þóst vel efnum búinn og erft mikið fé eftir íslenska ömmu sína.
Bloggað um fréttina
-
Pálmi Freyr Óskarsson Guilty Of Blackmailing A Royal With Gay Sex Tapes -
Reynir Andri Er þetta satt?
Erlent »
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. apríl 2008, Erlent Réttarhöld hafin yfir meintum fjárkúgurum
- Fimmtudagur, 20. desember 2007, Erlent Meintir fjárkúgarar áfram í gæsluvarðhaldi
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Mánudagur, 28. janúar 2008, Erlent Sex ára fangelsi fyrir sprengjuhótanir
- Þriðjudagur, 21. október 2008, Erlent Dæmdir í fangelsi fyrir hryðjuverkaáform
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































