Móðirin í haldi vegna barnslíka í frystikistu

Lögregla í Þýskalandi hefur handtekið 44 ára gamla konu sem grunuð er um að hafa myrt þrjú barna sinna. Lík þriggja nýfæddra barna fundust í frystikistu á heimili konunnar í þýska bænum Wenden um helgina. Konan býr í húsinu ásamt eiginmanni og þremur börnum á aldrinum 18-24 ára. Voru það ungmennin sem fundu líkin í frystikistunni er þau voru að leita að frosinni pizzu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Konan gaf sig sjálf fram við lögreglu en systkinin fundu líkin á laugardagskvöldið er foreldrar þeirra voru að heiman. Fundu þau þrjá pakka á botni frystikistunnar þegar þau grömsuðu í kistunni í leit af pizzu til að hafa í matinn. Þegar þau opnuðu einn þeirra sáu þau höfuð og handlegg barns sem var vafið inn í handklæði, að sögn lögreglu. Létu þau foreldar sína vita um líkin þegar þeir komu heim á sunnudeginum. Talið er að börnin þrjú hafi öll verið lifandi fædd en beðið er niðurstöðu krufningar um dánarorsök þeirra.

Fjölskyldan hefur búið í húsinu frá árinu 1984 og vöktu fréttirnar um líkfundinn mikinn óhug meðal íbúa í bænum. Segir bæjarstjórinn að dagurinn í gær hafi verið sá versti sem hann hafi upplifað þau fjórtán ár sem hann hefur gegnt starfi bæjarstjóra í Wenden.

Yfirmaður rannsóknarinnar, Herbert Fingerhut, sagði á blaðamannafundi í dag að konan hafi leynt því fyrir bæði nágrönnum og fjölskyldu að hún ætti von á barni í öll skiptin en talið er að hún hafi fætt öll börnin á níunda áratugnum. Segir hann að það hljómi ósennilega en dæmin sanni að slíkt sé hægt.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mál af þessu tagi kemur upp í Þýskalandi. Árið 2006 var kona dæmd fyrir manndráp og dæmd í 15 ára fangelsi fyrir að myrða átta nýfædd börn sín en hún gróf þau í blómapotta og fiskkar í garði foreldra sinna við landamæri Þýskalands og Póllands. 

Í febrúar sl. fannst lík af ungabarni í kjallara húss í norðurhluta Þýskalands og í janúar var tæplega þrítug kona ákærð fyrir manndráp eftir að líkamsleifar þriggja barna fundust á heimili hennar og hjá ættingja hennar. Neitar konan því að hafa myrt börnin. 

Í janúar í fyrra játaði 21 árs kona að hafa fætt þrjú börn og falið lík þeirra í bílskúr við heimili sitt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »
Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.

Breivik fær tíma til útskýringa

Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

Í gær, 22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
Í gær, 20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
Í gær, 19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.
Í gær, 20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
Í gær, 19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
Í gær, 17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Í gær, 17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
Í gær, 16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

Í gær, 17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
Í gær, 16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
Í gær, 16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Í gær, 15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
Í gær, 15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Evróvisjónsöngvakeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsunar pólitískra fanga. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
Í gær, 15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

Í gær, 15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

Í gær, 15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
TIL SÖLU SVARTIR SCHNAUZER HVOLPAR
Til sölu svartir standard schnauzer hvolpar. Tegund sem fer ekki úr hárum. HRFÍ-...
Smartliner bátar 17, 19 og 21 feta
Getum boðið þessa vönduðu báta á góðu verði og kjörum. Eru með stýri, sætum og ö...
Peugeot 206 XR Présence árgerð 2007
Til sölu mjög góður og fallegur Peugeot árg. 2007 ekinn 75.000 km. Beinskiptur. ...
 
Aðalfundur 2012
Fundir - mannfagnaðir
       ...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Framleiðslustjóri
Stjórnunarstörf
Framleiðslustjóri Starf framleiðslust...