Varðhald yfir Fritzl framlengt
Dómari í Austurríki hefur framlengt varðhaldsúrskurð Josef Fritzl, sem hélt dóttur sinni fanginni í 24 ár, um mánuð. Úrskurðurinn verður endurskoðaður að þeim tíma liðnum. Fritzl kom fyrir dómarann með lögfræðingi sínum í dag. Hann tók ekki sjálfur til máls en lögfræðingur hans sagði hann hafa lokað dóttur sína inni til að vernda hana gegn umheiminum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Í gær voru hins vegar höfð eftir honum ummæli þar sem hann sagði að stjórnlaus fíkn hafi ráðið gjörðum sínum en á þeim 24 árum sem dóttirin var fangi föður síns fæddi hún honum sjö börn. „Ég vissi að Elisabeth vildi ekki að ég gerði henni þetta. Ég vissi að ég meiddi hana. Þetta var eins og fíkn,” segir í ummælum sem höfð voru eftir Fritzl í dagblaðinu News í gær.
„Ég vissi allan tímann að það sem ég væri að gera var ekki rétt… en… það varð bara hversdagslegt fyrir mér, að ég ætti mér tvöfalt líf, annað sem ég lifði í kjallara húss míns.” Þá sagði hann Fritzl halda því fram að hann elski enn eiginkonu sína Rosemarie. „Frá því ég fyrst man eftir mér hefur það verið mín æðsta ósk að eignast mikið af börnum og ég áleit Rosemarie hæfa móður,” er haft eftir Fritzl í News. „Staðreyndin er sú að ég elskaði hana og ég elska hana enn."
Fritzl gagnrýndi einnig fréttaflutning fjölmiðla af málinu, í News og sagði fjölmiðla einungis hafa greint frá annarri hlið málsins. „Þegar ég fór inn í jarðhýsið færði ég dóttur minni blóm og börnunum bækur og leikföng. Ég horfði á ævintýramyndbönd með þeim á meðan Elisabeth eldaði uppáhaldsréttinn okkar og síðan settumst við öll niður og borðuðum saman."
Erlent »
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Erlent Elisabeth Fritzl í réttarsalnum
- Miðvikudagur, 30. júlí 2008, Erlent Rosemarie Fritzl rekin út
- Þriðjudagur, 29. apríl 2008, Erlent Josef Fritzl faðir allra barnanna
- Þriðjudagur, 29. apríl 2008, Erlent Hótaði börnum sínum dauða í kjallaranum
- Fimmtudagur, 1. maí 2008, Erlent Sá mann fara í jarðhýsið
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
Grunn-/framhaldsskóla
Sveitarfélagið Skagaströnd, Túnbraut 1-3...


































