Rosmary Fritzl yfirheyrð á ný
Rosmary, eiginkona Josef Fritzl, sem hélt dóttur þeirra hjóna fanginni í 24 ár og eignaðist með henni sjö börn, verður yfirheyrð á ný af lögreglu til þess að ganga úr skugga um að hún hafi ekki vitað neitt um hryllinginn í kjallaranum. Þetta kemur fram á vef Times en Sunday Times birtir í dag viðtal við yfirmann rannsóknarinnar, Frank Polzer.
Jafnframt verður rannsókn haldið áfram í húsinu og beinist hún nú að efri hæðum þess þar sem Josef Fritzl bjó ásamt eiginkonu sinni á meðan Elisabeth dóttir þeirra var læst niðri í kjallaranum ásamt þremur börnum sínum.
„Við teljum að Fritzl hafi starfað einn en við getum ekki útilokað að einhver vissi hvað var í gangi í kjallaranum," segir Polzer í viðtalinu.
Í síðustu viku hvatti Fritzl eiginkonu sína til þess að heimsækja sig í fangelsið en ekki er vitað hvort hún fari að þeirri ósk. Ekki eru allir trúaðir á orð hennar um að hún hafi ekki vitað neitt um hryllinginn í kjallaranum og að eiginmaður hennar hafi misþyrmt dóttur þeirra áratugum saman.
Fritzl hélt Elisabethu, sem er nú 42 ára, sem kynlífsþræl í hljóðeinangruðu og gluggalausu rými í kjallaranum. Henni var bjargað ásamt þremur börnum sem einnig var haldið í kjallaranum fyrir tveimur vikum. Þrjú önnur börn Elisabethar og Josefs voru alin upp af ömmu sinni og afa og pabba. En Josef sagði eignkonu sinni að þau hafi verið skilin eftir til ættleiðingar. Eitt barnanna lést skömmu eftir fæðingu og kom Josef líkinu fyrir.
Lögregla ætlar að spyrja Rosemarie, sem eignaðist sjö börn með eiginmanninum, hvort hún hafi aðstoðað Fritzl við að útbúa dýflissuna og hvað hún hafi haldið að eiginmaðurinn væri alltaf að gera niðri í kjallaranum.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. júlí 2008, Erlent Dóttir Fritzl brátt yfirheyrð
- Fimmtudagur, 1. maí 2008, Erlent Sá mann fara í jarðhýsið
- Þriðjudagur, 27. maí 2008, Erlent Kerstin Fritzl vöknuð úr dái
- Miðvikudagur, 7. maí 2008, Erlent Josef Fritzl samstarfsfús
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Erlent Elisabeth Fritzl í réttarsalnum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































