15 þúsund látnir

Frá borginni Mianyang í Sichuan-héraði í morgun stækka

Frá borginni Mianyang í Sichuan-héraði í morgun AP

Herþyrlur varpa nú matvælum og lyfjum til þeirra sem eiga um sárt að binda í fjallaþorpum í Sichuan-héraði í Kína eftir jarðskjálftann sem reið yfir á mánudag. Samkvæmt opinberum tölum létust tæplega 15 þúsund manns í skjálftanum en líklegt þykir að sú tala eigi eftir að hækka enn frekar þar sem tugþúsunda er enn saknað.

Enn finnst fólk á lífi í rústum bygginga sem hrundu á mánudag en samkvæmt frétt Xinhua ríkisfréttastofunnar er ástandið verra en búist var við á sumum stöðum, til að mynda í bænum Yingxiu í Wenchuan-sýslu. Af tíu þúsund íbúum bæjarins voru einungis 2.300 á lífi er hjálparstarfsmenn komust þangað fyrr í dag og eitt þúsund þeirra eru alvarlega særðir.

Samkvæmt opinberum tölum eru 14.866 látnir en ekki er vitað hvort þeir 7.700 sem létust í Yingxiu séu inni í þeirri tölu. Í Sichuan héraði er talið að 25.788 hafi grafist í húsarústum og 14.051 er enn saknað. 

Ólíkt því sem áður hefur verið þegar náttúruhamfarir hafi riðið yfir Kína þá er fjallað ítarlega um hamfarirnar í kínverskum fjölmiðlum og útsendingar allan sólarhringinn þar sem greint er frá hjálparstarfi og ástandinu á hamfarasvæðunum, samkvæmt fréttamanni AP fréttastofunnar. Meðal annars hafa birst myndir af forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, þar sem hann tekur þátt í hjálparstarfinu með því að hvetja fólk til þess að þrauka og hughreystir börn sem hafa misst foreldra sína. Meðal annars  voru sýndar myndir af því er hann hughreysti þriggja ára gamla stúlku sem var grafin undir rústum heimili síns í rúmar 40 klukkustundir þegar tókst að bjarga henni. Hins vegar létust foreldrar hennar í jarðskjálftanum.

Að sögn Wen eru um 100 þúsund hermenn og lögregluþjónar að störfum á hamfarasvæðunum.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »
Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.

Breivik fær tíma til útskýringa

Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

Í gær, 22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
Í gær, 20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
Í gær, 19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.
Í gær, 20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
Í gær, 19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
Í gær, 17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Í gær, 17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
Í gær, 16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

Í gær, 17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
Í gær, 16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
Í gær, 16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Í gær, 15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
Í gær, 15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Evróvisjónsöngvakeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsunar pólitískra fanga. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
Í gær, 15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

Í gær, 15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

Í gær, 15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið. Ef ósýnilegt blóð e...
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
Hótel Breiðafjörður í Stykkishólmi!
ERUM BÚIN AÐ OPNA. ALLAR UPPLÝSINGAR Á http://www.hotelbreidafjordur.is eða í i...
RÝMINGARSALA Á VÖRUBÍLADEKKJUM
Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. ...
 
Sýslumaðruinn á ísafirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....