Nauðsynlegt að efla hjálparstarf
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er kominn til hamfarasvæðanna í Búrma og mun á morgun eiga fund með Than Shwe, leiðtoga herforingjastjórnarinnar.
Búrmastjórn hefur sætt mikilli gagnrýni að undanförnu fyrir að hindra för alþjóðlegra hjálparstarfsmanna inn í landið. Ban segir þá neyðaraðstoð sem nú sé veitt einungis duga fyrir fjórðung bágstaddra.
134 þúsund látnir eða saknað
Than Shwe heimsótti hamfarasvæðin fyrst í þessari viku til að sjá eyðilegginguna sem fellibylurinn Nargis olli þegar hann gekk yfir suðurhluta landsins 2. maí. Heimsóknin þykir benda til þess að herforingjastjórnin hafi loks gert sér grein fyrir gríðarlegu umfangi eyðileggingarinnar.Nú er staðfest að 78 þúsund manns hafi látist í hamförunum og er 56 þúsund enn saknað. Fleiri hundruð þúsunda hafa misst heimili sín og áætla Sameinuðu þjóðirnar að nú, þegar þrjár vikur eru liðnar frá því að fellibylurinn reið yfir, hafi einungis tekist að koma hjálpargögnum til fjórðungshluta þeirra 2,4 milljóna manna sem búa við neyð. Nauðsynlegt sé að efla hjálparstarfið til að forðast frekari dauðsföll.
Úrhelli torveldar hjálparstörf
John Sparrow, talsmaður Rauða krossins í Bangkok, segir hættu á að miklar rigningar muni gera hjálparstarfsmönnum enn erfiðara að huga að öllum þeim sem eiga um sárt að binda. „Það er enn forgangsatriði hjá okkur að koma upp neyðarskýlum og tryggja aðgang að hreinu vatni. Við erum nú betur í stakk búin að ná til fleira fólks, en nauðsyn er á aukinni aðstoð ef við ætlum að koma í veg fyrir enn meiri hörmungar.“Vottur af samstarfsvilja
Áður en Ban lagði í ferðina til Búrma sagðist hann ætla að gera allt sem í sínu valdi stæði til að aðstoða íbúa landsins. „Ég vil verða vitni að þeim aðstæðum sem hjálparstarfsmenn búa við og ég hyggst gera allt til að efla starf þeirra í samráði við búrmnesk yfirvöld og alþjóðleg hjálparsamtök.“Ban fagnaði þeim votti af samstarfsvilja sem herforingjastjórnin hafði sýnt með því að heimila nágrannaríkjum sínum í Suðaustur-Asíu að skipuleggja erlenda hjálparaðstoð. Þá hafa herforingjarnir samþykkt að níu þyrlur Matvælastofnunar SÞ fái að starfa á svæðinu og koma hjálpargögnum til þeirra þorpa sem urðu verst úti. „Ég trúi því að framhald verði á þessu, þar á meðal að erlendum hjálparstarfsmönnum verði veitt leyfi til að koma inn í landið. Ég er sannfærður um að neyðaraðstoðin geti eflst mjög hratt.“




































