Setti nýfætt barn sitt í frysti

Nýbökuð móðir í Þýskalandi hefur viðurkennt að hafa sett nýfædda dóttur sína í frysti en hún taldi að barnið væri látið. Krufning hefur leitt í ljós að stúlkubarnið var enn á lífi er því var stungið inn í frystinn. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í bænum Horb kom móðirin til lögreglunnar á sunnudag og sagðist hafa sett barnið í fyrsti fyrir þremur til fjórum vikum síðan. Lögreglan fór á heimili konunnar og fann barnið í frystinum. Konan er í haldi lögreglu og unnið er að rannsókn málsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert