Slæður brot á stjórnarskrá Tyrklands

Stjórnarskrárdómstóll Tyrklands hefur fellt úr gildi heimild kvenna í háskólum …
Stjórnarskrárdómstóll Tyrklands hefur fellt úr gildi heimild kvenna í háskólum landsins til að bera íslamska höfuðklúta

Stjórnarskrárdómstóll Tyrklands hefur fellt úr gildi ákvörðunar tyrkneska þingsins um að heimila konum að vera með íslamska höfuðklúta eða slæður í háskólum landsins. Í ákvörðun dómsstólsins segir að ákvörðun þingsins frá því í febrúar bryti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar, að því er fram kemur í frétt á vef BBC.

Ríkisstjórn Tyrklands segir að bannið valdi því að mörgum konum sé synjað um rétt til náms en stjórnarflokkur landsins náði því fram á þingi í febrúar að bann við höfuðklútunum, sem sett var eftir valdarán hersins 1980, yrði afnumið þar sem það samræmdist ekki trúfrelsi og réttinum til menntunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert