Engin stækkun án sáttmála

Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti.
Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti. Reuters

Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, segir að Evrópusambandið muni ekki geta stækkað frekar án staðfestingar á Lissabon sáttmálanum, sem Írar höfnuðu í síðustu viku.  Sarkozy segir að án endurbóta verði engin stækkun.  Sarkozy lét þessi ummæli falla á ráðstefnu Evrópusambandsins sem nú stendur yfir í Brussel.  Skiptar skoðanir eru á milli leiðtoga Evrópuþjóða um framtíð sáttmálans en ákvörðun um framhald málsins hefur verið frestað þar til í október.  Nítján ríki hafa staðfest sáttmálann hingað til, nú síðast staðfesti breska þingið hann á miðvikudag.

Á ráðstefnunni náðist sátt um að hætta refsiaðgerðum gegn Kúbu sem voru settar árið 2003, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert