Dansað á götum úti á Spáni

Víða var dansað á götum úti  á Spáni í nótt eftir að Spánverðjar sigruðu  EM 2008 í knattspyrnu í gær. Sigurinn var annar Evrópumeistaratitill Spánverja en þeir sigruðu síðast á EM árið 1964. Þá var þetta fyrsti úrslitaleikur Spánar á stórmóti í knattspyrnu frá árinu 1984. 

Fréttaskýrendur BCC á Spáni segja keppnina hafa reynst hið mesta sameiningartákn fyrir Spánverja og að Baskar og Katalóníumenn hafi  jafnvel hrifist af frammistöðu spænska liðsins.

Frá Sabadell í nágrenni Barcelona, í nótt
Frá Sabadell í nágrenni Barcelona, í nótt AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert