Myndband, sem sýnir 49 ára gamla konu falla í gólfið og liggja látna og afskiptalausa í nær klukkutíma áður en öryggisvörður kom að henni, hefur vakið óhug. Konan var sjúklingur á geðdeild Kings County sjúkrahússins í Brooklyn, New York.
Lögfræðingar gerðu myndbandið opinbert í gær og hafa farið í mál við sjúkrahúsið, sem þeir saka um vanrækslu og misnotkun á andlega veikum sjúklingum.
Á myndbandinu sést konan falla úr stól sínum í gólfið og kippast til áður en hún lét lífið. Í kjölfar birtingar myndbandsins hafa nokkrir starfsmenn deildarinnar verið reknir.