Skar barn úr móðurkviði

23 ára kona hefur verið handtekin fyrir að hafa sl. föstudag myrt ófríska konu, skorið barnið úr móðurkviði og látið sem það væri sitt eigið. Atburðurinn átti sér stað í Kennewick í Washington í Bandaríkjunum.

Þegar fórnarlambið, hin 27 ára gamla Araceli Camacho Gomez, fannst sl. laugardag í almenningsgarði var hún bundin á höndum og fótum með snæri, með fjölda skurða á kviði auk stungusára á bringu.

Konan verður í varðhaldi meðan rannsókn fer fram en hún mun fara fyrir rétt á morgun. Í tösku hennar fundust hanskar útataðir blóði, dúkahnífur, blóðugar handþurrkur, snæri, peli og ungbarnasokkar. 

Drengurinn, sem rifinn var úr kviði móður sinnar, liggur á spítala í lífshættu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert