Ágreiningur kominn upp í París

Hosni Mubarak Egyptalandsforseti, Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, og Bashar Assad …
Hosni Mubarak Egyptalandsforseti, Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, og Bashar Assad Sýrlandsforseti við hátíðahöld í tilefni af þjóðhátíðardegi Frakklands í París í dag. AP

Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, hefur greint frá því að ágreiningur sé kominn upp á milli Ísraela og Palestínumanna um stofnályktun leiðtogafundar nýstofnaðs sambands ríkja Evrópusambandsins og Miðjarðarhafsríkja. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Kouchner segir ágreininginn snúast um það hvort Ísrael falli undir skilgreininguna lýðræðislegt þjóðríki.  Mikil bjartsýni hefur einkennt fundinn fram til þessa og hefur hann þótt skrautfjöður í hatt Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta sem átti frumkvæðið að stofnun sambandsins.  

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, átti sérstakan fund á leitogafundinum í gær og sögðu að honum loknum að þeir teldu þjóðirnar aldrei hafa verið nær því að ná friðarsamkomulagi sín á milli en nú.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert