Bannað að sýna Life of Brian
Bæjarstjórinn í smábænum Aberystwyth í Wales vill fá banni við sýningum á kvikmyndinni Life of Brian hnekkt í bænum. Bæjarstjórinn á nokkurra hagsmuna að gæta því hann lék eitt af helstu hlutverkunum í myndinni.
Myndin Life of Brian, sem breski leikhópurinn Monty Python gerði fyrir nærri þremur áratugum, gerir grín að biblíumyndum Hollywood. Myndin gerist í landinu helga árið 33 eftir Krist og fjallar um gyðing sem talinn er vera spámaður og lýkur ævi sinni á krossi syngjandi lagið: Always Look on the Bright Side of Life.
Strax eftir að myndin var frumsýnd komu fram ásakanir um að finna mætti í henni guðlast og var bannað að sýna hana á nokkrum stöðum í Bretlandi.
Sue Jones-Davies, sem lék Judith, kærustu Brians, er nú bæjarstjóri í Aberystwyth. Hún sagði, að það hefði komið sér algerlega í opna skjöldu þegar hún komst að því í síðustu viku, að enn væri bannað að sýna kvikmyndina í bænum.
„Í ljósi þess, sem sýnt er í sjónvarpinu nú á dögum er ótrúlegt að þetta bann skuli enn vera í gildi í Aberystwyth," sagði Jones-Davies við breska ríkisútvarpið BBC. „Mér finnst að það eigi að aflétta banninu. Mér finnst að trúarbrögð eigi að vera það víðsýn að þau viðurkenni að þessi mynd er gamanleikur."
Mörgum þykir myndin, sem skartaði m.a. gamanleikurunum John Cleese, Graham Chapman, Eric Idle, Terry Gilliam og Michael Palin, ein sú fyndnasta sem gerð hefur verið í Bretlandi. Bítillinn George Harrison framleiddi myndina.
BBC segir, að bæjarráðið í Aberystwyth muni fjalla um málið.
Bloggað um fréttina
-
Billi bilaði Líttu ávalt lífsins björtu hlið... -
Jac G. Norðquist Life er það sem..... -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Always look on the bright side of life -
Gísli Foster Hjartarson Eitt af snilldarverkum kvikmyndasögunnar -
Gunnar Kr. Brian's-limra -
Óskar Þorkelsson Ætli Villi V%%& í köben viti af þessari mynd ? -
Morten Lange Ég dreg dár að trúarkenninga ( 3 mnd fangelsi takk) -
Axel Jóhann Hallgrímsson Kristið umburðarlyndi? -
Stefán Friðrik Stefánsson Umdeild snilld hjá Monty Python
Erlent »
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
Fimmtudagur, 9.2.2012
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
- Breivik var tölvuleikjasjúkur
- Hópnauðgun vekur deilur í Mósambík
- Skotmaðurinn er tvítugur
- Foringi Al-Qaeda í Pakistan látinn
- Ástralskir neita leynifangelsi
- Fjölskylda forsetans flúin
- Fimm konur drepnar af hlébarða
- Grikkir vongóðir um björgun
Miðvikudagur, 8.2.2012
-
Biður fyrir fórnarlömbum kulda
- Beit fréttakonu í beinni útsendingu
- Þernur fái neyðarhnappa
-
Neðanjarðarlest út af sporinu
- Fjölskylduharmleikur á Grænlandi
- Goðafoss um Saxelfi ísi lagða
- Bensínið aldrei dýrara í Danmörku
- Búið að handtaka árásarmanninn
- Dvínandi vonir Rúmena og Búlgara
- Sjálfsmorðssprengja í Sómalíu
- Fjölgar mest í Kanada
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?
-
Norðurljósin utan úr geimnum
-
Harry prins kominn með þyrlupróf
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna



































