Karadžić handtekinn í Serbíu

Radovan Karadžić, fyrrum leiðtogi Bosníu Serba, hefur verið eftirlýstur af …
Radovan Karadžić, fyrrum leiðtogi Bosníu Serba, hefur verið eftirlýstur af alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum í Haag fyrir stríðsglæpi. Ratko Mladić, sem er til hægri á myndinni, gengur enn laus. AP

Radovan Karadžić, fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba og eftirlýstur stríðsglæpamaður, hefur verið handtekinn að sögn serbnesku leyniþjónustunnar. Karadžić hefur verið eftirlýstur í meira en áratug.

Skrifstofa Boris Tadićs, forseta Serbíu, hefur staðfest handtökuna.  Í yfirlýsingu frá forsetaskrifstofunni segir, að leyniþjónustan hafi haft upp á Karadžić í kvöld og handtekið hann.  Farið var með hann fyrir stríðsglæpadómstól í Belgrad í samræmi við serbnesk lög um samvinnu við stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag. 

Karadžić hefur verið eftirlýstur af alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum í Haag frá árinu 1996, en hann hefur verið ákærður fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi gegn Krótöum og múslimum í Bosníu og Hersegóvínu meðan á borgarastríðinu þar stóð á árunum 1992-1995, þar á meðal fyrir morð á nærri 8000 múslimum í Srebrenica árið 1995.

Ratko Mladić, sem var yfirmaður hers Bosníu-Serba, leikur enn lausum hala en hann er einnig eftirlýstur. Mjög hefur verið þrýst á stjórnvöld í Serbíu að handtaka þá Karadžić og Mladić og fleiri eftirlýsta stríðsglæpamenn. Alls hafa 43 Serbar verið framseldir til Haag, þar á meðal  Slobodan Milošević, fyrrum forseti Júgóslavíu, sem hrakinn var frá völdum árið 2000 og lést árið 2006 í Haag á meðan réttarhöld stóðu yfir honum.

Á laugardag framseldu serbnesk stjórnvöld  Stojan Župljanin, fyrrum lögreglustjóra í Bosníu, sem var handtekinn í Serbíu í síðustu viku eftir að hafa farið huldu höfði í 9 ár. Župljanin er sakaður um að hafa  stýrt fangabúðum í Bosníu þar sem þúsundir múslima og Króata voru drepnar.

Karadžić er 63 ára gamall, geðlæknir að mennt. Hann var forseti svonefnds Lýðveldis Serba í Bosníu, leiðtogi Lýðræðisflokks Serba og yfirmaður hers Bosníu-Serba. Stríðsglæpadómstóll SÞ ákærði hann fyrir þjóðarmorð, útrýmingu, morð, ofsóknir, nauðungarflutninga, ómennskar athafnir og aðra glæpi gegn múslimum, Króötum og öðrum kynþáttum í Bosníu og Hersegóvínu. Þetta hafi hann og samverkamenn hans gert til að fækka öðrum íbúum en Serbum á svæðum, sem lýst höfðu verið hluti af Lýðveldi Serba og tryggja þannig yfirráð Serba yfir þeim. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert