„Var bara samstarfskona Karadzic"

Radovan Karadzic, í hlutverki Dragan Dabic, með samstarfskonu sinni Mila …
Radovan Karadzic, í hlutverki Dragan Dabic, með samstarfskonu sinni Mila Cicak. AP

Fimmtíu og þriggja ára kona sem talið var að hefði verið ástkona Radovan Karadzic, fyrrum leiðtoga Bosníu Serba, er hann lifði og starfaði sem heilarinn Dragan Dabic segist einungis hafa verið samstarfskona hans.

Konan Mila Cicak segist hafa orðið fyrir miklu áfalli er hún frétti að Dabic væri í raun Karadzic og að síðan þá hafi tilvera hennar algerlega snúist á hvolf. „Ég er líka fangi,” segir hún. „Það eru ekki rimlar fyrir gluggunum mínum en fjölmiðlar sitja um mig.”

Þá segist hún einungis hafa þekkt hann í um sjö mánuði og að áhugi þeirra á óhefðbundnum lækningum hafa leitt þau saman. Hún segir einnig að sá maður sem hún þekkti, sem Dabic, hafi talað af mikilli þekkingu og innblæstri um lífið og tilveruna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert