Rússar hóta árásum á Georgíu
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í morgun að enginn staður í Georgíu, sem notaður væri fyrir árásir á Suður-Ossetíu, væri öruggur. Hann segir, að um 1500 manns hafi látið lífið í átökum aðskilnaðarsinna og Georgíuhers síðustu daga.
Rússneski herinn staðfesti í dag, að tvær rússneskar herflugvélar hefðu verið skotnar niður yfir Georgíu í gær en Georgíustjórn sagði vélarnar sex.
Georgíuher hóf stórsókn gegn aðskilnaðarsinnum í Suður-Ossetíu, sem er hérað í Georgíu en íbúar þar hafa löngu sagt sig úr lögum við landið. Sögðu stjórnvöld í Georgíu, að þau hefðu neyðst til að grípa til aðgerða vegna árása uppreisnarmanna í Suður-Ossetíu.
Aðskilnaðarsinnar héldu því hins vegar fram, að Georgíumenn hefðu rofið eigið vopnahlé. Rússar hafa náin tengsl við héraðið og brugðust við með því að senda vopnaðar skriðdrekasveitir þangað. Mikil hætta er talin á því, að átökin, sem í gær voru aðallega í héraðshöfuðborginni Tskhinvali leiði til stríðs milli Georgíu og Rússlands.
Dimitrí Medvedev, forseti Rússa, sagði að rússneskur her hefði í gær farið inn í Suður-Ossetíu til að neyða Georgíumenn til að fallast á vopnahlé.
Medvedev sagði, að rússneskir hermenn hefðu einnig það hlutverk að vernda óbreytta borgara í Suður-Ossetíu, sem margir eru með rússneskt vegabréf.
Georgíumenn sökuðu Rússa í gær um að ráðast á herstöðvar og byggingar og óskuðu eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins við að reka Rússa af höndum sér.
Þegar Lavrov var í morgun beðinn um að tjá sig um ásakanir Georgíumanna um að sprengjuárásir Rússa svaraði ráðherrann, að Georgía hefði ráðist á rússneska friðargæsluliða og óbreytta borgara. Georgíumenn ættu að vita, að svæði, sem notuð séu til slíkra árása, séu ekki örugg.
Lavrov var spurður hvort Rússar kynnu að gera árás á Tbilisi, höfuðborg Georgíu, en svaraði: „Ég held ekki að sprengjuárásirnar komi frá Tbilisi en enginn sá staður, sem notaður er undir árásir, er öruggur.
Erlent »
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Erlent Hvetur Georgíumenn til að semja frið
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Erlent „Best ef hann færi frá"
- Mánudagur, 11. ágúst 2008, Erlent Segir aðgerðum að mestu lokið
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Erlent Rússar halda í átt að Tbilisi
- Föstudagur, 8. ágúst 2008, Erlent Segja Rússa hafa gert innrás
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning



































