Rauði Krossinn eflir starfsemi sína í Georgíu

Alþjóðlegi Rauði Krossinn vinnur nú að því að flytja hjálpargögn til Georgíu. Samtökin hafa ekki fengið aðgang að Suður-Ossetíu en vinnur að dreifingu hjálpargagna í Norður-Ossetíu. Samtökin hafa minnst stríðsaðila á skyldur þeirra samkvæmt alþjóðasamningum.

Á næstu dögum mun Alþjóða Rauði krossinn flytja mikilvæg hjálpargögn til Georgíu til aðstoðar þeim sem stærst hafa í bardögunum. Fimmtán tonn af lyfjum og sjúkragögnum verða send með leiguflugi frá Genf ásamt vatnshreinsibúnaði sem séð getur um 20.000 manns fyrir hreinu drykkjarvatni.Þetta kemur fram á heimasíðu Rauða Krossins.

Í Suður-Ossetíu hafa staðið yfir harðir bardagar milli herja Georgíu, Rússlands og aðskilnaðarsinna. Alþjóða Rauði krossinn mun senda út neyðarbeiðni til styrktaraðila um fjárframlög til að bregðast megi við versnandi mannúðarástandi á svæðinu.

Átökin eru nú farin að breiðast út fyrir Suður-Ossetíu og Alþjóða Rauða krossinum berast sífellt fleiri fregnir af mannfalli úr röðum óbreyttra borgara. „Ástand íbúanna er enn mjög slæmt,“ segir Dominique Liengme, yfirmaður sendinefndar Alþjóða Rauða krossins í Georgíu. „Alþjóða Rauða krossinum tókst að senda teymi sendifulltrúa til bæjarins Gori í Georgíu til að kanna ástandið og þeir hafa staðfest að margir óbreyttir borgarar hafi flúið heimili sín á átakasvæðum.“

„Hingað til hefur Alþjóða Rauði krossinn ekki fengið aðgang að Suður-Ossetíu. Það er hins vegar forgangsmál okkar,“ segir Dominique. „Bardagar hafa verið of harðir til að við gætum ferðast um eða dreift hjálpargögnum en við sækjumst eftir því að fá óheftan aðgang að öllum bardagasvæðum og að sendifulltrúum verði tryggt fullt öryggi.“

Í Norður-Ossetíu vinnur Rauði krossinn með rússneskum yfirvöldum að dreifingu hjálpargagna til flóttafólks sem hefur yfirgefið Suður-Ossetíu.

Alþjóða Rauði krossinn hefur opinberlega minnt Georgíu og Rússland á skyldur þeirra samkvæmt alþjóðasáttmálum.

Alþjóða Rauði krossinn leitast við að fá aðgang að fólki sem haldið er föngnu í tengslum við átökin, þar á meðal tvo rússneska flugmenn sem eru særðir og eru í haldi georgískra yfirvalda. Alþjóða Rauði krossinn hefur einnig beðið um að fá afhent lík af rússneskum flugmanni sem lét lífið í bardögunum.

Alþjóða Rauði krossinn rekur sendinefnd í Tiblísí og starfar auk þess í georgísku Zugdidi og Gori.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »
Paul Watson.

Segja Watson fá réttláta meðferð

15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Breivik fær tíma til útskýringa

Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.
Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir
í skjólgóðri hlíð mót suðri í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Frábært útsýni. Heitt v...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj., 3-5 svefnherb, 1-...
 
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...