200 föngum sleppt í Ísrael

Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í dag að sleppa 200 Palestínumönnum, sem eru fangelsaðir í Ísrael. 

Mark Regev, talsmaður Ehuds Olmerts forsætisráðherra, segir að þetta sé gert til þess að sýna velvilja í garð Mahmouds Abbas, forseta Palestínu.  Ennfremur sé verið að styrkja framvindu friðarviðræðna á milli þjóðanna, sem hafa gengið hægt. 

Á meðal þeirra sem sleppt verður eru tveir menn sem voru settir í fangelsi á áttunda áratugnum fyrir árásir gegn Ísrael.  Ákvörðun þessi er umdeild þar sem mönnum sem hafa framið alvarlega glæpi verður sleppt.

Palestínumönnunum verður sleppt þann 25. ágúst, á sama tíma og Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísrael.  „Við vonum að lausn fanganna muni styrkja viðræðurnar," sagði Regev.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert