Flóttamenn misnota aðstoð sænska ríkisins

Reuters

Sænska útlendingaeftirlitið hefur áhyggjur af því að íraskir flóttamenn nýti sér styrk sem flóttamönnum, sem er neitað um hæli, stendur til boða af sænska ríkinu.  Hafa starfsmenn útlendingaeftirlitsins haft samband við dómsmálaráðuneytið þar sem þeir telja að einhverjir flóttamenn komi til landsins til þess eins að fá greiddan styrkinn og ætli sér aldrei að setjast að í Svíþjóð.

Í frétt á vef Dagens Nyheter kemur fram að í bréfi sem sent var til ráðuneytisins komi fram að einhverjir útlendingar óski eftir hæli í Svíþjóð án þess að ætla sér að búa í landinu. Eina ástæðan sé að þiggja styrk frá sænska ríkinu.

Svíþjóð hefur frá því í ársbyrjun í fyrra hert þær reglur sem gilda um flóttamenn sem sækja um hæli í landinu og fá færri hæli nú en áður. Mun algengara er að flóttamennirnir séu sendir til síns heima og er það gert þrátt fyrir að þeir komi frá stríðshrjáðum löndum eins og Írak, Sómalíu og Afganistan.

Frá því í ágúst í fyrra hefur þeim flóttamönnum, sem koma frá fyrrnefndum löndum, og  sendir eru úr landi, staðið til boða fjárstuðningur ef þeir fara til síns heima af fúsum og frjálsum vilja. Hver fullorðinn einstaklingur getur fengið 20 þúsund sænskar krónur, 260 þúsund krónur,  og börn 10 þúsund sænskar krónur. Hver fjölskylda getur þó ekki fengið meira en 50 þúsund sænskar krónur, 650 þúsund íslenskar krónur.

Í frétt DN kemur fram að 159 Írakar hafi í ár óskað eftir styrk eftir að hælisumsókn þeirra hafi verið hafnað en að 207 hafi dregið umsókn um hæli til baka áður en þeir óskuðu eftir styrk sænska ríkisins.

Filippa Nordfeldt, hjá sænska útlendingaeftirlitinu, staðfestir ekki fjöldann sem hefur dregið umsókn til baka en staðfestir að eftirlitið telji að kerfið hafi verið misnotað.

DN tekur dæmi af Íraka sem sótti um styrk til þess að fara aftur heim eftir að hafa dvalið einungis í átta daga í Svíþjóð. Umsókn hans um styrk var hafnað.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »
Paul Watson.

Segja Watson fá réttláta meðferð

15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Breivik fær tíma til útskýringa

Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.
Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Peugeot 206 XR Présence árgerð 2007
Til sölu mjög góður og fallegur Peugeot árg. 2007 ekinn 75.000 km. Beinskiptur. ...
Komdu fljúgandi og gistu í Tjaldbót-2012
Eða leigðu 2-4 sæta flugvélar og sumarhús í nágrenni Eyjafallajöluls og Heklu. ...
KENNI Á BMW 116I
Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Allar upplýsingar, verð og myndir eru á heimasíðunni: http://husgogn.net Hægt e...
 
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...