Rauða krossinum tryggt aðgengi
Alþjóða Rauði krossinn vinnur nú að ítarlegu mati á þörfinni fyrir mannúðaraðstoð á átakasvæðum í Georgíu. Teymi sendifulltrúa er komið til Tskhinvali, höfuðborgar Suður-Ossetíu til að leggja mat á ástandið á svæðinu.
Þetta kemur fram á vef samtakanna.
„Megintilgangur farar minnar var að tryggja Alþjóða Rauða krossinum aðgang að Suður-Ossetíu. Við höfum upplýsingar um að mikil neyð ríki á átakasvæðunum og það er brýnt að brugðist sé við þörfum fólks sem skjótast,” sagði formaður Alþjóðaráðs Rauða krossins, Jakob Kellenberger, en hann er nýkominn aftur úr þriggja daga ferð til Georgíu og Rússlands.
Í samtali við Sergei Lavrov utanríkisráðherra
Rússlands í Moskvu á þriðjudaginn var formanninum tjáð að Alþjóða Rauði
krossinn hefði fullan stuðning Rússlands í viðleitni sinni til að veita
neyðaraðstoð í Suður-Ossetíu.
Samkvæmt upplýsingum Rauða krossins þurfa margir af íbúum Suður-Ossetíu
á mannúðaraðstoð og vernd að halda. „Starfsmenn Rauða krossins munu
leggja mat á þarfir þeirra sem þurft hafa að flýja heimili sín og
einnig verður gerð úttekt á ástandi heilbrigðisstofnanna. Við leggjum
einnig mikla áherslu á að sameina fjölskyldur sem hafa sundrast og
orðið viðskila vegna átakanna og leitum að fólki sem hefur horfið, “
sagði Kellenberger.
„Þá munum við reyna að fá aðgang að öllum þeim sem
hafa verið teknir höndum eða eru í varðhaldi vegna átakanna til að hægt
sé að leggja mat á þá meðferð sem þeir fá og þau lífsskilyrði sem þeir
þurfa að búa við.” Formaðurinn bætti því við að Alþjóða Rauði krossinn
hafi náið samráð við yfirvöld allra stríðandi fylkinga um skipulag og
samhæfingu aðstoðarinnar.
Í Georgíu hefur Rauði krossinn veitt þúsundum flóttamanna hjálp og
stutt við heilbrigðisþjónustu um allt land. Á undanförnum vikum hafa
verið flutt rúmlega 430 tonn af mat og öðrum hjálpargögnum til Georgíu
sem hluta af mannúðaraðstoð við allt að 25.000 flóttamenn.
Erlent »
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Erlent Rauði Krossinn eflir starfsemi sína í Georgíu
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Erlent Aðstoð berst til Georgíu
- Föstudagur, 8. ágúst 2008, Erlent Rauði krossinn krefst þess að mannúðarlög séu virt í Suður-Ossetíu
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Erlent Hjálparstarfið tekur nokkur ár
- Laugardagur, 6. september 2008, Erlent Segir Bandaríkjamenn færa Georgíu vopn í skjóli hjálpargagnaflutninga
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning



































