Flugvél Spanair bilaði

Flugmálayfirvöld á Spáni segja, að flugvél frá spænska félaginu Spanair hafi bilað þegar hún var á leið frá Barcelona til Lanzarote í dag. Varð vélin að lenda á flugvellinum í Málaga. Ekki var um nauðlendingu að ræða.

Flugvél Spanair fórst á flugvelli í Madrid í síðustu viku og með henni 155 manns. 18 komust lífs af en þeir eru allir á sjúkrahúsi enn, margir lífshættulega slasaðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert