Kynþáttafordómar gætu kostað Obama sigurinn

Barack Obama og John McCain.
Barack Obama og John McCain. Reuters

Djúpstæðir kynþáttafordómar hvítra kjósenda demókrataflokksins gætu kostað Barack Obama, forsetaframbjóðanda flokksins, sigurinn ef jafnt verður á mununum í kosningunum, samkvæmt nýrri könnun. Þriðjungur þessara kjósenda hefur neikvæðar hugmyndir um blökkumenn.

Könnunin var gerð á vegum AP og Yahoo News í samstarfi við Stanfordháskóla.

Margir umræddra kjósenda, sem hafa neikvæða mynd af blökkumönnum, kölluðu þá lata og ofbeldisgjarna, og kváðu þá sjálfa bera ábyrgð á bágu hlutskipti þeirra.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er hlutfall þeirra kjósenda sem kunna að snúa baki við Obama vegna kynþáttar hans hærra en nam hlutfallslegum mun á frambjóðendunum í síðustu forsetakosningum, sem var um tvö og hálft prósent.

Um 40% allra hvítra Bandaríkjamanna hafa að minnsta kosti að einhverjar neikvæðar hugmyndir um blökkumenn.

Yfir þriðjungur allra hvítra demókrata og óflokksbundinna kjósenda, sem Obama þarf á að halda eigi hann að geta sigrað í kosningunum, kvaðst sammála að minnsta kosti einu neikvæðu lýsingarorði um blökkumenn, samkvæmt könnuninni.

Þessir þátttakendur eru mun ólíklegri til að greiða Obama atkvæði en þeir sem ekki hafa þessar neikvæðu hugmyndir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert