Segir skattahugmyndir Obama óamerískar

Barack Obama og JOhn McCain takast í hendur fyrir fyrstu …
Barack Obama og JOhn McCain takast í hendur fyrir fyrstu sjónvarpskappræðurnar. AP

John McCain,  frambjóðanda repúblikanana í bandarísku forsetakosningunum, hefur aftur ráðist harkalega á skattahugmyndir mótherja síns, Barack Obama, forsetaefni demókrata. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Að sögn McCain munu skattahugmyndir Obama koma harðast niður á millistéttinni. Sjálfur segist McCain leggja fyrirtækjum lið svo þau geti vaxið enn frekar og þannig skapað fleiri Bandaríkjamönnum störf. 

Obama hefur gert nokkurra daga hlé á kosningabaráttu sinni til þess að heimsækja aldraða og veika ömmu sína sem dvelur á Hawaii. Hann mun taka upp þráðinn í Nevada að tveimur dögum liðnum. 

Talið er að Vesturríkin geti ráðið úrslitum í komandi forsetakosningum sem fram fara 4. nóvember nk. 

McCain hóf kosningaherferð helgarinnar í New Mexico, þar sem repúblíkanar unnu sigur fyrir fjórum árum. Á fundi þar sagði hann nauðsynlegt fyrir flokkinn að vinna sigur í New Mexico. Því næst réðst hann harkalega á skattahugmyndir Obama. „Hann vill endurdreifa auðnum. Í slíku felst að peningar eru teknir frá einum hópi Bandaríkjamanna og gefnir öðrum hópi. Við höfum séð slíka tilfærslu fjármuna í öðrum löndum. Það samrýmist hins vegar ekki amerískri hugmyndafræði.“

Þess má geta að samkvæmt nýjustu skoðunarkönnun bandaríska vikuritsins Newsweek hefur Obama allnokkurt forskot á McCain og mælist með 53% fylgi meðan McCAin mælist með 40% fylgi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert