Obama með 7 prósenta forskot

Nýjustu kannanir sýna að Barack Obama er með 7 prósentustiga forskot á John McCain. Kosið verður um nýjan forseta Bandaríkjanna á morgun. 

Forsetaframbjóðendurnir hafa báðir verið á miklum þeytingi undanfarna daga, sérstaklega í þeim ríkjum þar sem munurinn milli þeirra er hvað minnstur.

McCain var m.a. í Pennsylvania í dag og Obama í Flórída. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert