Næstu skref Palin

Þegar er farið að ræða hvað taki við hjá Söruh Palin, varaforsetaefni repúblikana, eftir ósigurinn á þriðjudag. Margir spá Palin glæstri framtíð á vettvangi stjórnmálanna, þegar hún hefur aflað sér meiri reynslu og þekkingar á ýmsum mikilvægum málaflokkum, enda hafi hún fáheyrða hæfni til að hrífa.

Hrifningunni er þó enn sem komið er misskipt. Á fundum með þeim kjósendum repúblikana sem hvað leggja hvað mesta áherslu á íhaldssöm samfélagsgildi er Palin fagnað sem rokkstjörnu.

Vísbendingar eru hins vegar um að hún eigi mikið verk fyrir höndum þegar kemur að því að laða óháða og hófsamari kjósendur að flokknum.

Sjálf segir hún of snemmt að horfa til 2012 og mögulegs forsetaframboðs síns, enda sé margt á döfinni í fjölskyldulífi hennar.

Sarah Palin.
Sarah Palin. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert