Nýr borgarstjóri Jerúsalem
Jerúsalembúar hafa fengið nýjan borgarstjóra. Athafnamaður sem auðgaðist á hugbúnaði og vill gera borgina að miðstöð líftækniiðnaðar lagði í borgarstjórakosningum leiðtoga flokks öfgasinnaðra hreittrúar-gyðinga.
Nir Barkat er 49 ára að aldri og fyrrverandi foringi í fallhlífaherdeild ísraelska hersins, en hann fékk í kosningunum um 52% atkvæða en rabbíninn Meir Porush fékk 43% atkvæða. Þriðji frambjóðandinn, rússnesk-ísraelski milljarðamæringurinn Arcady Gaydamak stóð þeim langt að baki og fékk einungis 3,6% atkvæða.
Times Online segir að í sigurræðu sinni hafi Barkat heitið því að standa vörð um Jerúsalem á sama tíma og hann yrði borgarstjóri allra Jerúsalembúa. Barkat sem er harðlínumaður af hægri væng stjórnmálanna í landinu tekur við af Uri Lupolianski, fyrsta öfgasinnaða heittrúar-gyðingnum til að gegna borgarstjóraembættinu í Jerúsalem.
Keppinauturinn Meir Porush er 54 ára þingmaður fyrir Sameinaða Torah Júdaista flokkinn hét kjósendum sínum því að veraldleg sjónarmið væru á undanhaldi í Ísrael og háði harða kosningabaráttu gegn Barkat.
Barkat á hinn bóginn höfðaði til kjósenda á þeim forsendum að vaxandi trúarhyggja samfélagsins myndi hindra allan vöxt í efnahagslífinu og leiða til atgerfisflótta yngri frumkvöðla frá borginni yfir til Tel Aviv þar sem heittrúaröflin hafa ekki sömu fótfestu.
Há fæðingatíðni hefur verið í Jerúsalem og það ásamt ríkulegu framlagi stjórnvalda hefur haft í för með sér að heittrúaðir gyðingar eru vaxandi hlutfall borgarbúa á sama tíma og veraldarlega sinnaðri gyðingar yfirgefa borgina.
Arabar kjósa ekki
Arabar eru um þriðjungur íbúa borgarinnar og hunsa kosningar þar fremur en að láta í ljósi nokkurn stuðning við ísraelsk yfirráð. Þeir halda því fram að eystri hluti borgarinnar þar sem flestir þeirra búa, eigi að verða höfuðborg Palestínu-ríkisins í framtíðinni.
Í því máli er hins vegar algjör einhugur milli Barkat og Porush - ekki kemur til greina að þeirra áliti að fallast á skiptingu Jerúsalem sem hluta af friðarsamningum þeim sem til umræðu eru, m.a. af hálfu Tzipi Livni, utanríkisráðherra sem bjóða mun sig fram sem forsætisráðherraefni Kadima-flokksins í þingkosningum snemma á næsta ári.
Bæði Barkat og Porush eru eindregnir stuðningsmenn þess að byggðar verði þúsundir nýrra íbúða fyrir Ísraela í þessum umdeilda hluta borgarinnar, Palestínu-mönnum til mikillar gremju.



































