Sarkozy hrósar sér en hnýtir í Bush
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sagðist í dag hafa sýnt af sér fyrirmyndarforustu þegar hann miðlaði málum í deilu Georgíu og Rússlands. Hins vegar væri ekki hægt að segja það sama um starfsbróðir hans í Bandaríkjunum.
„Þegar ljóst varð 8. ágúst, að einhver varð að fara til Moskvu, hver var það þá sem stóð vörð um mannréttindi?" spurði Sarkozy þegar hann fékk í dag afhent verðlaun tímaritsins Politique Internationale. Um er að ræða verðlaun, sem veitt eru fyrir pólitískt hugrekki.
„Var það forseti Bandaríkjanna, sem sagði: Þetta er óviðunandi? Eða var það Frakkland, sem beitti sér fyrir viðræðum milli leiðtoga Rússlands og Georgíu?" spurði Frakklandsforseti.
Stríðsátök brutust út milli Rússa og Georgíumanna í ágúst þegar Georgíuher reyndi að leggja undir sig Suður-Ossetíu. Sarkozy beitti sér fyrir friðarsamkomulagi í deilunni.
„Ég man eftir samtali við Bandaríkjaforseta daginn áður en við fórum til Moskvu: „Ekki fara þangað, þeir (Rússarnir) vilja fara til Tbilisi, þeir eru í 40 km fjarlægð. Ekki fara, þú skalt bara fordæma þetta."
„Við vorum þar ásamt Bernard Kouchner (utanríkisráðherra Frakklands) og, eins og fyrir tilviljun þá var vopnahléið tilkynnt á meðan," sagði Sarkozy þegar hann tók við verðlaununum í forsetahöllinni í París.
Hann mun eiga fund með Dimitrí Medvedev, forseta Rússlands, í Nice á morgun. Búist er við að Sarkozy gagnrýni þar brot Rússa gegn vopnahléssamningnum en reyni jafnframt að treysta samkomulag ríkjanna tveggja.
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 18. ágúst 2008, Erlent Rússar standi við gefin loforð
- Miðvikudagur, 27. ágúst 2008, Erlent Sarkozy: Enginn hefur áhuga á nýju köldu stríði
- Þriðjudagur, 19. ágúst 2008, Erlent Medvedev segir Rússa verða farna á föstudag
- Mánudagur, 8. september 2008, Erlent Yfirmenn ESB til fundar við forseta Rússlands
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Erlent Hvetur Georgíumenn til að semja frið
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning



































