Verður Gates áfram varnarmálaráðherra?

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. stækka

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP

Sterkur orðrómur er um það í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, að Robert Gates verði áfram varnarmálaráðherra landsins í nýrri ríkisstjórn Baracks Obama. Telja ýmsir að þar skipti sköpun yfirburða þekking Gates á stöðu mála í Afganistan og Írak en á sama tíma telja aðrir að það geri Obama ókleift að halda Gates í embætti. Með því gefi hann umheiminum þau skilaboð að hann muni ekki standa við yfirlýsingar um að ljúka stríðinu í Írak.

Hingað til hefur Obama og hans nánasta samstarfsfólk þagað þunnu hljóði um hverjir muni sitja í næstu ríkisstjórn Bandaríkjanna. Hins vegar þykir líklegt að Obama tilkynni fljótlega um hvaða ráðherrar muni starfa með honum þegar hann tekur við embætti forseta þann 20. janúar nk.

Gates, sem er á ferðalagi í útlöndum, hefur heldur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla. Þegar hann var í Eistlandi á miðvikudag var hann spurður af fjölmiðlafólki hvort hann hafi rætt við Obama og hans fólk, brosti Gates og sagði: „Ég hef ekkert að segja um það mál."

Framtíð Gates í embætti fékk byr undir báða vængi í síðasta mánuði er ráðgjafi Obama í utanríkismálum, Richard Danzig, sagði að Gates hafi staðið sig vel í embætti varnarmálaráðherra og hann yrði enn betri sem slíkur í ríkisstjórn Obama.

Samkvæmt Wall Street Journal á þriðjudag hallast Obama að því að halda Gates í embætti í að minnsta kosti eitt ár þrátt fyrir að önnur nöfn hafi borið á góma hvað varðar embætti varnarmálaráðherra. Þar má nefna menn eins og Danzig og John Hamre, fyrrum aðstoðar varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Bills Clinton.

Hvað varðar Gates sjálfan, sem er 65 ára gamall og er frá Washington ríki, þá hefur hann ítrekað lýst því yfir að hann geti ekki beðið eftir því að komast á eftirlaun þegar tímabilinu lýkur. Hann gengur jafnvel svo langt að vera með dagatal á skrifborði sínu sem telur niður dagana að 20. janúar. Hins vegar segja nánir vinir Gates að hann muni ekki skorast undan ábyrgðinni biðji Obama hann um að vera áfram í embætti varnarmálaráðherra. Hann telji það vera borgaralega skyldu sína. 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd úr safni.

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »
Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VANTAR BÍLSKÚR EÐA SVPAÐ PLÁSS
Mig vantar bílskúr eða svipað pláss undir TRÉFÖNDUR Í MOSFELLSBÆ EÐA NÁGRENNI ke...
Skoda Oktavia til sölu
Skoda Oktavia station bíll, árgerð 2005 til sölu. Bíllinn er keyrður um 130.000 ...
ÞRÍTUG MÓÐIR MEÐ 6 ÁRA GAMLAN SON ÓSKAR
Þrítug móðir með 6 ára gamlan son óska...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside 12 " fellihýsi árg. 2003 til sölu. Borðkrókurinn er útdraganleg...
 
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Framleiðslustjóri
Stjórnunarstörf
Framleiðslustjóri Starf framleiðslust...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...