Murdoch: Bjartsýnn fyrir hönd dagblaða
Dagblöð í Bandaríkjunum sem og víðast annars staðar standa frammi fyrir gríðarlegum breytingum í rekstri þar sem sífellt fleiri leita frétta á netinu og með öðrum leiðum en á síðum dagblaða. Auglýsendur fylgja þessari breytingu og hafa auglýsingatekjur dagblaðanna minnkað á sama tíma og auglýsingar hafa aukist i netmiðlum.
Murdoch sagði í ávarpinu að netið bjóði upp á aukin tækifæri og áskoranir en að dagblöðin verði áfram til og þau muni ná nýjum hæðum á 21. öldinni.
Murdoch, sem er fæddur í Ástralíu en er búsettur í Bandaríkjunum, er einn helsti eigandi fjölmiðla í heiminum í dag. Meðal annars á hann 20th Century Fox, Fox News, Sky , Dow Jones og MySpace, auk á annað hundruð dagblöð.
Hann sagði í erindi sínu að fólk væri hungraðra í upplýsingar heldur en nokkru sinnni fyrr. Dagblöðin væru bloggurum fremri þar sem lesendur treystu þeim betur. „Lesendur vilja enn það sama og áður, heimildir sem þeir geta treyst,“ sagði Murdoch. Það hefur alltaf verið meginstefna góðra dagblaða í gegnum tíðina. Það er það veldur því að þau halda stöðu sinni í framtíðinni, sagði Murdoch enn fremur.
Murdoch sagði að það megi hins vegar ekki horfa fram hjá því að fleiri leita frétta á netinu og benti á tvö dagblöð í hans eigu sem séu með trygga lesendur á vefnum, The Times of London og The Wall Street Journal. Það megi hins vegar ekki gleyma því að þessi dagblöð verði að gera sér grein fyrir því, líkt og önnur dagblöð að viðskiptavinir á netinu ákveði hvaða fréttir þeir vilja og hvernig þeir nálgast þær.
Til þess að vera samkeppnishæfur í dag þá þýði ekki að bjóða upp á hugsunarháttinn „ein stærð hentar öllum" í fjölmiðlum. Áskorunin sé að nota vörumerki dagblaðsins á sama tíma og lesendur geta valið sér hvaða fréttir þeir vilja lesa og að láta þá fréttirnar með þeim hætti sem lesendum hentar.
Til þess að mæta þessu mun The Wall Street Journal væntanlega bjóða upp á þrjár leiðir á netinu. Ókeypis fréttir, áskrift að fréttum og í þriðja lagi þjónustu þar sem ítarlegar fjármálafréttir ásamt greiningum verður að finna



































