Íslendingur barðist fyrir málstað flugfarþeganna

Þúsundir mótmælenda eru á flugvellinum. stækka

Þúsundir mótmælenda eru á flugvellinum. SUKREE SUKPLANG

Holberg Másson var einn talsmanna farþeganna á flugvellinum í Bangkok í morgun. Hann segir að farþegarnir, sem voru strandaglópar vegna þúsunda mótmælenda sem lokuðu flugvellinum, hafi hvorki fengið vott né þurrt í þær 18 klukkustundir sem þeir héldu til á flugvellinum, taílensk yfirvöld og starfsmenn flugvallarins hafi sýnt þeim lítinn áhuga.

„Um ellefuleytið í morgun vorum við sem ætluðum til London orðin óþreyjufull og fórum og báðum um að fá að tala við þá sem fóru fyrir mótmælunum. Ég og annar urðum talsmenn farþeganna og sögðum þetta ekki líðandi þar sem okkur væri haldið nauðugum. Mótmælendur sögðu ekki annað koma til greina. Ég sagði þá að þetta gengi ekki því við værum hreinlega gíslar. Mótmælendurnir urðu alveg brjálaðir yfir því að við teldum okkur gísla þar sem okkur væri frjálst að fara. En við bentum þeim á að það væri ekki svo auðvelt þar sem við værum föst og kæmumst hvergi,“ segir Holberg.  

„Þá var eins og viðmót þeirra breyttist og þeir lofuðu að reyna að gera eitthvað fyrir okkur og reyndu jafnframt að réttlæta aðgerðir sínar. Við reyndum að ná í flugvallaryfirvöld og um tvö leytið var tilkynnt að það kæmu rútur. Okkur var svo fylgt af lögreglunni út í um 100 rútur og erum nú á leiðinni á hótel í Pattaya sem er í um klukkutíma frá Bangkok þar sem við fáum vonandi eitthvað að borða,“ segir Holberg.  

Holberg var á leiðinni til London og kom á flugvöllinn í gærkvöldi. „Mér sagt að hætt hefði verið við að tékka fólk inn og að allir starfsmenn flugvallarins hefðu flúið eftir að mótmælendurnir komu hingað. Svo var okkur sagt að bíða en eftir miðnætti var sagt að talað yrði við okkur en það dróst og dróst svo við reyndum að sofa. Það voru um 3.000 flugfarþegar og hátt í 10.000 manns að mótmæla, með ræður og söngva í alla nótt. Þeir lokuðu flugvellinum svo við komumst ekki burt, hvorki flug né hægt að komast af vellinum með bílum,“ segir Holberg.

„Í morgun var enginn hér frá yfirvöldum og engir starfsmenn flugfélaga, þetta var alveg stórskrítið. Við fengum hvorki vott né þurrt í um 18 klukkutíma frá því að við komum á völlinn og höfum ekki enn fengið neitt. Mótmælendurnir komu með birgðir með sér og sögðust ætla að vera þarna í nokkra daga,“ segir Holberg.

Hann segist hafa heyrt af einhverjum sprengingum en að lætin í mótmælendunum hafi verið svo gífurleg að hann hafi ekki heyrt í þeim sjálfur.

Starfsmaður danska sendiráðsins hafi sagt að neyðaráætlun væri í gangi og að herinn myndi sjá um að koma okkur burt. Á morgun verði frekari fréttir af því hvernig og hvenær farþegunum verði komið í burtu. „Það var mikill hiti í fólki og óþægileg staða að lenda svona mitt á milli í átökunum,“ segir Holberg.

Holberg Másson

Holberg Másson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd úr safni.

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »
Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Grand Cherokee Laredo árg. 2007 SÚPERTILBOÐ 2,100 þús.
Til sölu Grand Cherokee V6 3,7 sjálfskiptur árg. 2007 ekinn 84 þús.km. Dráttarbe...
Opnaðu hliðið með símanum
Með einföldum búnaði er hægt að opna hlið og bílskúrshurðir með gsm síma. Hægt e...
Snyrti og nuddbekkir
Glæsilegur snyrti og nuddbekkur fáanlegur í 3 litum. 185*60-81cm. Það sem á mynd...
TOYOTA COROLLA 1600
Toyota Corolla 1600 sjálfskiptur, til sölu. Nýskráður 0...
 
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...