Indverskur ráðherra segir af sér

Lögreglu og slökkviliðsmenn við Taj Mahal hótelið í Mumbai. stækka

Lögreglu og slökkviliðsmenn við Taj Mahal hótelið í Mumbai. Reuters

Shivraj Patil, ráðherra innanríkismála á Indlandi, hefur afhent Manmohan Singh, forsætisráðherra landsins, uppsagnarbréf sitt en með afsögn sinni segist hann vilja axla siðferðislega árás á atburðunum í Mumbai undanfarna daga. Hátt í 200 manna haf látið lífið í borginni frá því öfgamenn réðst á tvö hótel og nokkra fleiri staði í borginni á miðvikudag. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Yfirvöld á Indlandi sæta nú harðri gagnrýni fyrir það hvernig að aðgerðum gegn hryðjuverkamönnunum var staðið. Þá hafa þau verð krafin um skýringar á því hvernig þær gátu átt sér stað og uppreisnarmenn haldið borginni í helgripum jafn lengi og raun var á. 

Útlit er fyrir að einungis tíu áráarmenn hafi verið að verki en auk hótelanna höfðu þeir járnbrautarstöð, samkomuhús gyðinga og sjúkrahús á sínu valdi. Staðfest hefur verið a 22 útlendingar séu í hópi hinna látnu. 

Shah Mahmood Qureshi, utanríkisráðherra Pakistans, segir samskipti ríkjanna mjög stirð í kjölfar málsins en að hann vonist til að henni létti þegar betur kemur í ljós hvað raunverulega átti sér stað. 

Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands, hefur sagt að svo virðist sem árásarmennirnir hafi haft bækistöð í Pakistanen eini eftirlifandi tilræðismaðurinn er Pakistani. Óstaðfestrar fréttir herma að hann staðhæfi að hópurinn sem kallaði sig  Deccan Mujahideen hafi hlotið þjálfun pakistönsku leyniþjónustunnar, Lashkar-e-Toiba. Hópurinn var síðan bannaður árið 2002 að kröfu Bandaríkjamanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Ráðist gegn PKK í Írak

Tyrkneskir herbílar skammt frá landamærum Tyrklands og Íraks.
13:10 Tyrkneski flugherinn gerði loftárásir á skotmörk í norðurhluta Íraks í morgun. Árásirnar beindust gegn liðsmönnum PKK, Verkamannaflokki Kúrda, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hafa borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.
Í gær, 19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýsklandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »

Hvatti börn sín til betra lífs

Osama bin Laden.
11:34 Hermdarverkamaðurinn Osama bin Laden sem ráðinn var af dögum af bandarískum sérsveitarmönnum í maí á síðasta ári hvatti börn sín til að mennta sig og búa í Bandaríkjunum eða Evrópu. Jafnframt bað hann þau um að feta ekki sömu slóð og hann sjálfur. Þetta kemur fram í viðtali við mág hans í Sunday Times. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
Í gær, 20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.
Í gær, 18:38 Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
Í gær, 17:53 Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

í gær Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

Í gær, 17:22 Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
í gær Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Hóta vesturlöndum og Ísrael

í gær Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði í dag að heimurinn muni fljótlega fá vitneskju um framfarir í kjarnorkuáætlun Írans en Bandaríkin og ríki Evrópusambandsins hafa hert þvinganir á Íran vegna rannsókna sinna á sviði kjarnorku. Meira »

Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni

Leiðtogar tveggja stærstu verkalýðsfélaga á Spáni; Ignacio Fernandez Toxo hjá CCOO og Candido Mendez hjá ...
í gær Tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar hvetja til fjöldamótmæla eftir rúma viku, sunnudaginn 19. febrúar. Mótmæla á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Barist um bandarísku sálina

Mitt Romney.
í gær Mitt Romney, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, lofar því að sameina Repúblikana og að sigra Barack Obama. Hann segir kosningarnar vera „baráttu um bandarísku sálina“. Forkosningar fara fram í Maine-ríki í dag. Meira »

Íranar fagna byltingarafmæli myndskeið

Íranar fagna byltingarafmæli
í gær Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei. Meira »

Gingrich og Santorum herja á Obama

Rick Santorum.
í gær „Við munum ekki biðjast afsökunar og hverfa frá þeim gildum okkar, sem gera land okkar svo stórkostlegt, til þess að geta unnið sigur í nóvember“ sagði Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, á ráðstefnu í morgun. Meira »

Ásaka Breta um hervæðingu

í gær Utanríkisráðherra Argentínu, Hector Timberman, hefur sakað bresk stjórnvöld um að koma fyrir kjarnorkuvopnum við Falklandseyjar. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Argentínu, hafa undanfarið haft sig nokkuð í frammi vegna deilunnar um yfirráð yfir Falklandseyjum. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hyundai Getz 2008 til sölu
Mjög vel með farinn Hyundai Getz til sölu. Árgerð 2008. Ekinn 32.000 km. Verð: ...
DAEWOO LEGANZA --- í frábæru standi ---
VERÐ 350.þús.Árg. 98 sjálfsk, ek. 190þús KM. Ný tímareim, vatnsd., allar bremsur...
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
Hönnun - umbrot - prentun
Prentum nafnspjöld, reikninga í þríriti, bréfsefni, dreifibréf ásamt flest öllu ...
 
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...
Stúkan helgafell
Félagsstarf
m HELGAFELL 6012020819 VI...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922098 [Kk...