Upplýsir um stuðningsmenn sína

Hillary Clinton ásamt Bill eiginmanni sínum, Dorothy Rodhammóður sinni og …
Hillary Clinton ásamt Bill eiginmanni sínum, Dorothy Rodhammóður sinni og Chelsea dóttursinni. JIM BOURG

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur samþykkt að greina frá nöfnum þeirra rúmlega 200 þúsund einstaklinga og stofnana sem veitt hafa stofnun hans fjárframlög. Þetta gerir hann til þess að greiða fyrir því að eiginkona hans, Hillary Clinton, geti orðið næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 

Reiknað er með því að Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, útnefni Hillary Clinton næsta utanríkisráðherra Bandaríkjanna á morgun. 

Síðan Bill Clinton lét af embætti sem forseti hefur hann notið stuðnings bæði einstaklinga og fyrirtækja við uppbyggingu stofnunar sem kennd verður við hann.

Í herbúðum Baracks Obama höfðu menn áhyggjur af að þetta gæti leitt til hagsmunaárekstra og því var þetta samkomulag gert við forsetann fyrrverandi.

Clinton féllst einnig á að leggja ræður sínar og viðskiptaáætlanir fyrir siðanefnd þingsins svo lengi sem kona hans gegnir embætti utanríkisráðherra.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert