Frekari aðgerðir í loftslagsmálum brýnar

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Nathalie Kosciuscko-Morizet, umhverfisráðherra Frakklands. stækka

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Nathalie Kosciuscko-Morizet, umhverfisráðherra Frakklands.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti í gær fund með Nathalie Kosciuscko-Morizet, umhverfisráðherra Frakklands. Frakkland fer nú með formennsku í Evrópusambandinu.

Ráðherrarnir ræddu stefnu Evrópusambandsins í umhverfismálum, sérstaklega fyrirliggjandi tillögur í loftslagsmálum. Í tillögunum er stefnt að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 20% fyrir árið 2020 miðað við losun 1990 og auka notkun endurnýjanlegrar orku í 20% af heildar orkunotkun í ríkjum sambandsins.

Áframhaldandi áhersla á loftslagsbreytingar
Reiknað er með að tillögurnar verði samþykktar snemma á næsta ári og að fullu frágengnar fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember 2009. Þar er stefnt að því að ljúka gerð nýs alþjóðasamnings um losun gróðurhúsalofttegunda sem taki við af Kyoto-bókuninni þegar gildistíma hennar lýkur í lok árs 2012.

Fram kom í máli franska umhverfisráðherrans að Evrópusambandið væri jafnvel reiðubúið til að ganga lengra í samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda ef alþjóðlegt samkomulag næðist um slíkt. Þrátt fyrir efnahagsörðugleika mætti ekki slá á frest bráðnauðsynlegum aðgerðum í loftslagsmálum. Auk þess gætu aðgerðir í loftslagsmálum haft jákvæð áhrif á efnahagskerfið og skapað ný störf, svo sem í þróun loftslagsvænni tækni og rannsóknum.

Ræddu ráðherrarnir sértaklega um nauðsyn þess að leggja aukna áherslu nú á grænan hagvöxt í þessu sambandi.

Náin samskipti ESB og Íslands í loftslagsmálum
Umhverfisráðherrarnir töldu afar mikilvægt að loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Poznan í Póllandi yrði árangursrík. Endanlegrar niðurstöðu í viðræðunum væri þó ekki að vænta fyrr en í Kaupmannahöfn á næsta ári. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra gerði grein fyrir áherslum Íslands í viðræðum um nýjan loftslagssamning og þeirri stöðu sem Ísland væri í að vera innan viðskiptakerfis ESB með loftslagsheimildir í gegnum EES samninginn. Því legðu íslensk stjórnvöld áherslu á að eiga sem nánust samskipti við ESB í samningaviðræðunum sem nú eru í gangi.

Málefni Norðurheimskautsins
Umhverfisráðherrarnir ræddu einnig málefni Norðurheimskautsins en Frakkland hefur lagt mikla áherslu á þau í formennskutíð sinni, sérstaklega vegna loftslagsbreytinga. Þórunn Sveinbjarnardóttir fagnaði áhuga ESB á málefnum Norðurskautsins enda væri um að ræða mikið og vaxandi verkefni sem biði Norðurskautsríkjanna og stórt hagsmunamál Íslands. Því væri þátttaka ESB og stuðningur afar jákvæður að mati Íslands. Fram kom að ESB hefur í hyggju að sækja um áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu.

Fundur norrænna umhverfisráðherra
Umhverfisráðherra sótti einnig fund norrænu umhverfisráðherranna, sem haldinn var í aðdraganda fundar umhverfisráðherra Evrópusambandslandanna. Samstaða ríkir milli þeirra Norðurlanda sem eru aðilar að ESB um að ekki verði hvikað frá þegar samþykktum markmiðum í loftslagsmálum og að stefnt verði að meiri samdrátt í losun við gerð nýs loftslagssamnings.

Löndin telja mikilvægt að fylgja þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið um að setja losunarheimildir á uppboðsmarkað þannig að árið 2020 verði allar heimildir á markaði. Ennfremur sé nauðsynlegt að halda verði  losunarheimildum innan skynsamlegra marka og að tekjum af sölu heimilda verði í auknum mæli varið til loftslagsbætandi verkefna í þróunarríkjunum.

Á fundi norrænu ráðherranna var einnig rætt um alþjóðlegan samning um takmörkun á notkun kvikasilfurs sem öll norrænu ríkin eru fylgjandi, en Ísland hefur ásamt Noregi og Sviss átt frumkvæði að því að flytja tillögur um það á Alþjóðavettvangi. Slíkur samningur getur t.d. gagnast vel mengunarvörnum á Norðurskautssvæðinu. Einnig var á fundinum rætt um úrgangsmál, útblástur frá nýjum bílum og erfðabreyttar lífverur en vinna er í gangi á þessum sviðum hjá ESB.

Með umhverfisráðherra í för var Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu. Auk þeirra tóku þátt í fundunum Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, sendiráðsritari og Ingimar Sigurðsson, fulltrúi umhverfisráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel.

Heimasíða Umhverfisstofnunar Evrópu

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd úr safni.

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »
Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Hankook dekk
225/75 R16 ca hálfslitin. Verð 30 þús. Uppl. í síma 898 4875...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
BÍLAMERKINGAR
Bílamerkingar Fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Sendið fyrirspurn á audmerkt@a...
Enskur stofusófi
Flottur sófi til sölu vegna flutnings. Verðhugmynd 30.000 kr. Upplýsingar í sí...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Sölumaður / skjalagerð
Sérfræðistörf
Fasteignasala Rótgróin og traust fasteig...