Fréttaskýring: Táknmyndin fölnar - Risarnir þrír fá risaaðstoð

Forstjórarnir þrír, Rick Wagoner, Alan Mulally og Robert Nardelli sjást hér gera grein fyrir þeirra ... stækka

Forstjórarnir þrír, Rick Wagoner, Alan Mulally og Robert Nardelli sjást hér gera grein fyrir þeirra sýn á bílaiðnaðinn frammi fyrir þingnefnd. LARRY DOWNING

mbl.is Eftir Magnús Halldórsson, magnush@mbl.is

Bandarískir bílaframleiðendur hafa átt í erfiðleikum vegna vaxandi samkeppni frá Evrópu og Japan. „Bandaríski bílaiðnaðurinn hefur einfaldlega brugðist,“ segir í fréttaskýringu í nýlegu hefti fagtímaritsins The Economist þar sem spáð er fyrir um gang mál í efnahags- og stjórnmálum árið 2009. Þar er spáð „áframhaldandi“ varnarbaráttu bandaríska bílaiðnaðarins. Allt útlit er nú fyrir að risarnir þrír, General Motors (GM), Ford og Chrysler muni fá um 15 milljarða dollara björgunaraðstoð, jafnvirði um 1.725 milljarða króna, frá bandarískum stjórnvöldum. Staða GM og Chrysler er alvarlegri en hjá Ford, en hjá þeim fyrrnefndu er nærri allt lausafé uppurið, að því er fram kemur í frétt The New York Times í dag. Björgunaraðstoðin er meira en helmingi lægri upphæð en forstjórar fyrirtækjanna, Alan Mulally hjá Ford, Rick Wagoner hjá GM og Robert Nardelli hjá Chrysler, sögðust þurfa til þess að geta bjargað bílaiðnaðinum frá allsherjargjaldþroti. Frammi fyrir hópi þingmanna sögðu þeir 34 milljarða dollara, tæplega 4.000 milljarða króna, vera nauðsynlega til að koma í veg fyrir stórfellt atvinnuleysi hjá nærri fjögurra milljóna manna stétt sem vinnur við bílaiðnaðinn í Bandaríkjunum. Stór hluti stéttarinnar er í bílaborginni Detroit.

Hinn gullni millivegur

Barack Obama, sem tekur við sem forseti Bandaríkjanna í næsta mánuði, lét hafa eftir sér í viðtölum í Bandarískum fjölmiðlum í gær, þar á meðal í The Washington Post, að stjórnendur bílaframleiðendanna þriggja yrðu að hafa hugrekki til þess að taka „erfiðar ákvarðanir og laga sig að breyttum aðstæðum“. Ef björgunaraðstoðin, í boði skattgreiðenda í Bandaríkjunum, dygði ekki ættu þeir að sjá sóma sinn í því að hætta.
Ummæli Obama eru talin endurspegla viðhorf bæði Repúblikana og Demókrata í þinginu, og vera hinn gullni millivegur ólíkra sjónarmiða þegar kemur að aðstoð við bílaiðnaðinn. Þau eru þó ekki óumdeild eins og gefur að skilja. Sumir vilja lána hærri fjárhæðir, til að tryggja atvinnu og framgang "stolts" Bandaríkjanna, en aðrir vilja ekki lána neitt. Vandamál einstakra fyrirtækja séu engum öðrum að kenna nema þeim sjálfum. Önnur fyrirtæki geti leyst risanna þrjá af hólmi.
George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur verið talsmaður þess að millivegurinn verði farinn. Iðnaðurinn verði aðstoðaður fyrir „eins lága fjárhæð og hægt er að komast upp með“, eins og segir í fréttaskýringu blaðakonunnar Lori Montgomery í The Washington Post. Þó sátt um 15 milljarða björgunaraðstoð virðist í sjónmáli er enn deilt um útfærslu  og lagalegar útleggingar. Ekki er talið réttlætanlegt að veita fyrirtækjunum aðstoð nema um hún muni renna stoðum undir iðnaðinn í heild til langs tíma. Þá þykir líklegt að sá sem stýri eftirliti og framkvæmd aðstoðarinnar muni heyra beint undir Bandaríkjaforseta. Skipun þess verður að líkindum sameiginleg ákvörðun Bush og Obama, þó Bush muni sjá um skipunina samkvæmt formlegum reglum, þar sem reyna mun á gott samstarf við forsetanna báða þegar aðstoðin verður veitt.

Með og á móti


Helstu rök fyrir aðstoðinni er þau, að efnahagsþrengingar sem fyrirsjáanlegar eru á næstu árum - og hafa þegar gert vart við sig - séu svo miklar að ekki verði hjá því komist að koma fyrirtækjum til aðstoðar. Er þar helst horft til milljóna starfa sem tengjast bílaiðnaðinum. Mat bandaríska stjórnvalda er að aðstoðin sé óhjákvæmileg þó þungbær sé fyrir skattgreiðendur. Þó oft sé á það minnst í fjölmiðlum, að bílaiðnaðurinn sé stór hluti af jákvæðri ímynd Bandaríkjanna, þá telja fréttskýrendur helstu dagblaða Bandaríkjanna, að þessi sjónarmið hafi engin áhrif haft í umræðu um aðstoðina. Of miklir hagsmunir séu í húfi svo „huglæg gildi“ getið ráðið för.
Umræðan um mótrökin hefur þó verið háværari. Þar er helst litið til þess að staða risanna þriggja sé sjálfskaparvíti, og afleiðing þess að stjórnendur bílaframleiðenda í Bandaríkjunum vanmátu styrk keppinauta á markaði frá Evrópu og Japan. Er þessi þróun talin hafa átt sér stað á yfir 25 ára tímabili, en síðan orðið sífellt skýrari eftir því sem markaðurinn fyrir evrópskra og japanska framleiðendur opnaðist meira. Nú er svo komið að Toyota er mesta seldi bíll Bandaríkjanna, líkt og hér á landi. „Þetta hefði verið óhugsandi fyrir ófáum árum,“ er haft eftir starfsmanni í verksmiðju Ford í Bretlandi, í The Telegraph fyrr í vikunni. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segir í viðtali við The Washington Post í dag að mistök einstakra fyrirtækja verði ekki leiðrétt en réttlætanlegt sé að „skapa bílaiðnaðinum traustari grunn“ með skattfé.

Táknmyndin fölnað

Sú var tíðin að bandarískir bílar voru táknmynd bandaríska draumsins. Bílabíó, þar sem rúmgóður glæsivagn var miðpunkturinn var í hugum margra - og er enn - raunsönn mynd af Bandarískum hversdagsleika þar sem allt leikur í lyndi. Síðustu þrjá áratugi hefur þessi táknmynd fölnað, hægt og bítandi í fyrstu, en hratt ef horft er til undanfarinna ára. Bandarískir bílaframleiðendur hafa átt í erfiðleikum vegna vaxandi samkeppni frá Evrópu og Japan. Í þeirri samkeppni hafa þeir einfaldlega orðið undir. Ekki hefur tekist að mæta þörfum viðskiptavina með sama hætti og keppinautarnir hafa gert. Robert Nardelli, eða Bob eins og hann er oft kallaður, sagði er hann tók við sem forstjóri Chrysler í ágúst í fyrra að lykillinn að framtíðinni væri „sveigjanleiki og aðlögun“. Ljóst má vera að einhver umsvifamesta sértæka björgunaraðstoð til iðnaðar í sögu Bandaríkjanna mun kalla á snögga stefnubreytingu fremur en aðlögun og sveigjanleika. Hálfgerða U-beygju. Gangi spár eftir um nærri 40 prósent minni sölu á nýjum bílum, á næstu tveimur árum, þarf kraftverk til þess að bílaiðnaðurinn nái áttum á ný og stefni rétta leið. Takist það má samt sem áður telja líklegt að bandarískir bílar verði ekki aftur áhrifarík táknmynd landsins eins og áður var. Of miklar breytingar á bílaiðnaðnum í heiminum, og þá sérstaklega í Bandaríkjunum, hafa átt sér stað til þess.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd úr safni.

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »
Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HREINSISPREY
Kristals-hreinsisprey Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur og kr...
Til sölu fellihýsi
Til sölu fellihýsi med fortjaldi gasmidstöd og 220voltarafm vel med farid uppl 6...
BLACKLION SUMARDEKK
Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63...
Gasgrill
Til sölu gasgrill með hitaplötu. Tilboð. Uppl. í síma 863-7512...
 
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...