Livni reitir ísraelska araba til reiði
Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, tókst ekki að mynda nýja ríkisstjórn er hún reyndi það í haust. Reuters
Ummæli Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels og formanns Kadima flokksins, um ísraelska araba hafa valdið mikilli reiði araba með ísraelskan ríkisborgararétt. Sagði Livni að stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna, myndi leysa „þjóðlegan” vanda ísraelskra araba. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Hafa leiðtogar ísraelskra araba krafist þess að hún skýri ummælin og svari því hvort hún hafi verið að gefa í skyn að ísraelskir arabar munu missa ríkisborgararétt sinn í Ísrael eða jafnvel verða hraktir úr landi í kjölfar stofnunar sjálfstæðs ríkis Palestínumenna.
Livni þykir ekki hafa svarað þessu en í gær sagði hún: „Þetta er ekki spurning um brottvísanir eða neyðarflutninga. Ég er tilbúin til að láta eftir hluta þess lands sem ég tel okkur eiga tilkall til, til þess að Ísrael geti áfram verið ríki gyðinga og lýðræðisríki þar sem allir þegnar hafa, jafnan rétt án tillits til trúarbragða.”Þjóðerni og hollusta eru viðkvæm mál meðal ísraelskra araba og ísraelskir harðlínumenn hafa ítrekað lýst yfir áhyggjum af vaxandi hlutfalli þeirra meðal ísraelsku þjóðarinnar sem m.a. má rekja til hárrar fæðingartíðni meðal þeirra.
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. mars 2009, Erlent Stjórn í burðarliðnum í Ísrael
- Fimmtudagur, 16. október 2008, Erlent Prúttað um nýja stjórn í Ísrael
- Sunnudagur, 15. mars 2009, Erlent Netanyahu og Livni ræðast við
- Þriðjudagur, 5. maí 2009, Erlent Biden: Stefnt að stofnun sjálfstæðs ríkis
- Fimmtudagur, 18. september 2008, Erlent Livni kjörin leiðtogi Kadima
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn



































