Köttur fær linsur

Ernest sér nú mýsnar á ný.
Ernest sér nú mýsnar á ný. Þorkell Þorkelsson

Kötturinn Ernest fékk sjónina á ný með kontaktlinsum. Talið er að þetta sé í fyrsta sinn í sögu læknavísinda sem þetta er gert.  

Ernest er 15 ára gamall, svartur og hvítur kisi, og hann þjáðist af augnsjúkdómi sem gerði það að verkum að augnlokin sneru inn á við og rispuðu augun. Dýralæknar stungu upp á því að hann fengi linsur þar sem hann er orðinn of gamall til að hætta mætti á deyfingu.

Eigendur Ernest segjast aldrei fyrr hafa heyrt um kött með linsur. „Honum líður núna miklu betur, áður voru augu hans alltaf lokuð en nú eru þau opin,“ er haft eftir eigandanum.

Fjarlægja þarf linsurnar úr augum Ernest og hreinsa þær á þriggja vikna fresti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert