Flytja út bændur til Afríku

. stækka

. CHINA NEWSPHOTO

Kínverjar hafa nú um nokkra hríð gert sér mjög dælt við Afríkuríkin og viðskiptin við þau hafa stóraukist. Kínverjar kaupa af Afríkumönnum einkum hrávöru og landbúnaðarafurðir og láta þá fá í staðinn sitt af hverju, t.d. iðnvarnig og vopn, og einnig dálítið annað: Kínverska bændur.

Áætlað er, að viðskipti Kína og Afríkuríkja hafi verið um 100 milljarðar dollara á þessu ári en Kínverjar líta ekki síst hýru auga til mikilla náttúruauðlinda í Afríku og einkum til olíunnar. Talið er, að um 750.000 Kínverjar hafi verið í Afríku um hríð eða sest þar að til að stunda viðskipti og til að nýta auðlindirnar. Í þeim hópi eru bændurnir en aðeins frá Hebei-héraið í Kína hafa komið 10.000 bændur og þeir hafa sest að í 18 Afríkuríkjum. Búa þeir í svokölluðum „Baoding-þorpum", allt frá 400 manns upp í 2.000.

Í Kína búa rúmlega 20% mannkyns en þar í landi eru aðeins um 7% ræktanlegs lands. Í Afríku er landrýmið yfrið nóg en fólkið tiltölulega fátt og afrískir bændur, sem stunda eitthvað meira en sjálfsþurftabúskap, enn færri.

Sumum hugnast ekki þessi þróun. benda þeir á, að Kínverjar geri hosur sínar grænar fyrir ráðmönnum víða í álfunni og láti sér í léttu rúmi liggja hvernig stjórnarfarið er. Haldi kínversku bændunum og öðrum áfram að fjölga og ítök þeirra að aukast þá geti verið, að Afríkumenn eigi eftir að vakna upp við vondan draum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.

Tóku forskot á sæluna í Bonn

19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýsklandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »
Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.

Fjöldamótmæli vegna ACTA

18:38 Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

17:22 Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
15:44 Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
17:53 Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

16:03 Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Hóta vesturlöndum og Ísrael

15:34 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði í dag að heimurinn muni fljótlega fá vitneskju um framfarir í kjarnorkuáætlun Írans en Bandaríkin og ríki Evrópusambandsins hafa hert þvinganir á Íran vegna rannsókna sinna á sviði kjarnorku. Meira »

Íranar fagna byltingarafmæli myndskeið

Íranar fagna byltingarafmæli
15:08 Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei. Meira »

Gingrich og Santorum herja á Obama

Rick Santorum.
12:56 „Við munum ekki biðjast afsökunar og hverfa frá þeim gildum okkar, sem gera land okkar svo stórkostlegt, til þess að geta unnið sigur í nóvember“ sagði Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, á ráðstefnu í morgun. Meira »

Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni

Leiðtogar tveggja stærstu verkalýðsfélaga á Spáni; Ignacio Fernandez Toxo hjá CCOO og Candido Mendez hjá ...
14:37 Tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar hvetja til fjöldamótmæla eftir rúma viku, sunnudaginn 19. febrúar. Mótmæla á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Barist um bandarísku sálina

Mitt Romney.
12:45 Mitt Romney, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, lofar því að sameina Repúblikana og að sigra Barack Obama. Hann segir kosningarnar vera „baráttu um bandarísku sálina“. Forkosningar fara fram í Maine-ríki í dag. Meira »

Ásaka Breta um hervæðingu

12:42 Utanríkisráðherra Argentínu, Hector Timberman, hefur sakað bresk stjórnvöld um að koma fyrir kjarnorkuvopnum við Falklandseyjar. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Argentínu, hafa undanfarið haft sig nokkuð í frammi vegna deilunnar um yfirráð yfir Falklandseyjum. Meira »

Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi

Ungir drengir vopnaðir byssum og sprengjum sjást á al-Qaeda æfingu.
10:55 Íraskir al-Qaeda liðar eru sagðir bera ábyrgð á tveimur sprengjum sem nýlega sprungu í borginni Damaskus í Sýrlandi. Að auki eru samtökin talin vera ábyrg fyrir sprengjunum tveimur sem sprungu í sýrlensku borginni Aleppo í gær með þeim afleiðingum að 28 létu lífið. Meira »

Rómarborg snæviþakin myndskeið

Enn snjóar í Evrópu
09:34 Ekkert lát er á frosti og snjókomu á meginlandi Evrópu og liggur nýfallin mjöll eins og hvítt teppi yfir Rómarborg, en það mun afar fátíð sjón. Meira »

Dóná fraus í nótt

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 ...
11:29 Yfirborðsvatn Dónár fraus í nótt, skammt frá höfninni í Silistra í Búlgaríu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem áin frýs.  Meira »

Saadi Gaddafi boðar byltingu

Saadi Gaddafi á velmektarárum sínum með keppnistreyju sína.
09:49 Saadi Gaddafi, einn sona Múammars Gaddafi heitins, fyrrum forseta Líbíu, segir að ný bylting kraumi meðal Líbíumanna sem séu óánægðir með nýja stjórnarhætti í landinu. Hann heitir því að snúa aftur til síns heima, en hann flúði til Níger. Meira »

Ofbeldið í Sýrlandi eykst myndskeið

Ofbeldið í Sýrlandi heldur áfram
09:01 Að minnsta kosti 28 létu lífið og 235 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í borginni Aleppo í Sýrlandi í gær. Meðal hinna látnu voru börn Skriðdrekar, búnir þungvopnum, óku inn í borgina Homs. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HUMARHLAÐBORÐ - Árshátíð - Vorferð -
Humar, humar, ... lamb. Humarhlaðborð - aðeins 35 mín frá Rvk. - tilvalið fyri...
Honda Civic
Honda Civic árg. 1997 til sölu. Sparneytinn bíll, ný tímareim, nýtt bremsukerfi...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mín...
Vaskur í baðherbergi - klassískur
Hvítur klassískur vaskur, með blöndunartækjum, í baðherbergi til sölu. Sanngjarn...
 
Uppboð
Uppboð
UPPBOÐ Eftirtaldir munir verða boðnir...
Efta administrative assistant
Önnur störf
The Financial Mechanism Office (FMO) ...
Úthlutun byggðarkvóta
Tilkynningar
Auglýsing vegna úthlu...