Bush sæmir Blair orðu

George W. Bush veitir Tony Blair Frelsisorðuna.
George W. Bush veitir Tony Blair Frelsisorðuna. Reuters

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur sæmt Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, æðstu borgaralegu orðu Bandaríkjanna.

Tveir aðrir af helstu bandamönnum Bush í forsetatíð hans, Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, og John Howard, fyrrverandi forsætisráðherra, fengu einnig Frelsisorðuna við athöfn í Hvíta húsinu í dag.

Blair og Howard studdu Bush í innrásinni í Afganistan árið 2001, þegar stjórn talibana var steypt af stóli, og einnig í Íraksstríðinu árið 2003.

Bush lætur af embætti eftir viku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert