Norðmenn hafa áhyggjur af Evrópusamvinnu
Ef samstarfið um Evrópska efnahagssvæðið milli Evrópusambandsins (ESB) og Norðmanna kemst í uppnám eða verður sagt upp, vill stór hluti Norðmanna, sem annars er á móti ESB, vera með í ESB, að því er ný skoðanakönnun sýnir.
Noregur á ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu þó svo að búast megi við að Íslendingar geri það í náinni framtíð, að því er meirihluti norskra kjósenda telur. Hins vegar, ef samstarfið um Evrópska efnahagssvæðið (EES) fellur niður, telur meirihluti Norðmanna að rétt sé að sækja um aðild að ESB. Frá þessu er sagt í Dagbladet.no.
EES er heitið á samstarfi um sameiginlegt efnahagslegt umhverfi milli ESB, Noregs, Íslands og Liechtenstein. EES felur í sér að ákvarðanir ESB um innri markað gilda einnig um löndin þrjú.
Aðild Íslands að ESB gæti haft afleiðingar fyrir EES-samstarfið. Ef EES-samningurinn yrði ógildur vegna aðildar Íslands að ESB telur meirihluti Norðmanna Noreg ekki geta staðið einan utan ESB og bæri því að sækja um aðild. TNS Gallup gerði skoðanakönnunina fyrir norsku Evrópuhreyfinguna.
„Það kemur ekki á óvart að aðild Íslands að ESB breytir ekki afstöðu Norðmanna til ESB. Við reiknuðum ekki með íslenskum áhrifum. En skoðanakönnunin sýnir líka að meirihluti þjóðarinnar sér ESB-aðild sem valkost við EES. Ef afleiðingin verður að EES-samningurinn breytist eða verður ógildur breytist allt. Ef Ísland gengur í ESB er EES-samstarfið í hættu og aðstæður breytast í Noregi og stjórnmálamenn verða að taka tillit til þess,“ segir aðalritari Evrópuhreyfingarinnar, Grete Berget.
Nærri 60% Norðmanna eru nú á móti aðild að ESB. Sterkust er andstaðan meðal kvenna og fólks á aldrinum 15-29 ára. Á hinn bóginn vilja 47,2% allra Norðmanna ganga í ESB, 41% er á móti og 11,8% eru óviss um afstöðu sína fari svo að EES-samstarfið komist í uppnám.
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Erlent Segir EES halda gildi sínu
- Sunnudagur, 23. nóvember 2008, Erlent Ræði aðild Noregs að ESB
- Fimmtudagur, 3. september 2009, Erlent EES nær ekki að fylgja Evrópusambandinu
- Þriðjudagur, 18. nóvember 2008, Erlent Mikil andstaða enn við ESB í Noregi
- Föstudagur, 8. maí 2009, Erlent Norðmenn leiða íslensk ESB-mál hjá sér
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum



































