Flugmaðurinn gerði kraftaverk

Flugmaður vélarinnar sem nauðlenti í Hudson-fljóti í gærkvöld þykir hafa unnið mikið afrek. Hann er nú talinn hetja eftir að allir farþegarnir 155 og áhöfnin björguðust.

Vélin var frá flugfélaginu US Airways  og var af gerðinni Airbus A320. Hún nauðlenti nokkrum mínútum eftir flugtak frá La Guardia og talið er að fuglahópur hafi lent í hreyflum hennar þannig að báðir urðu óvirkir.

Farþegum var flestum bjargað af vængjum vélarinnar en kafarar náðu nokkrum úr ískaldri ánni.  

Meistaraleg lending

Borgarstjórinn Michael Bloomberg, bar lof á flugstjórann,  Chesley Sullenberger, fyrir meistaralega lendingu.

Ríkisstjórinn talaði um lendinguna sem „kraftaverk á Hudson“.

Blaðamaður BBC skrifar frá New York að þarna hafi verið forðað stórslysi þar sem rétt hjá því sem vélin hrapaði er fjöldi skýjakljúfa og engin alvarleg slys urðu á fólki. Einn brotnaði á báðum fótum og bráðaliðar aðstoðuðu 78 aðra vegna minniháttar meiðsla. 

Rannsóknarnefnd flugslysa er mætt á staðinn í New York til að rannska vettvanginn.

Flug 1549 fór á loft frá LaGuardia á leit til Charlotte í Norður-Karólínu kl.  15.03 að staðartíma, eftir 18 mínútna töf á fluginu. Flugmaðurinn tilkynnti að fuglar hefðu lent í báðum hreyflum innan mínútu eftir flugtakið og bað um leyfi til að lenda aftur áður en hann skellti vélinni í Hudson-fljótið.

Ferjur voru komnar á staðinn nokkrum mínútum síðar og hófu björgun farþega. Það var afar kalt og straumurinn í fljótinu var mjög þungur.

Vélin flaut hratt niður ána og óttast var að hún myndi sökkva þangað til dráttarbátar náðu að stöðva flot hennar. 

Jeff Kolodjay, farþegi um borð í vélinni, lýsti lendingunni á þann hátt að um þremur eða fjórum mínútum eftir að vélin hófst á loft hafi hreyflarnir „einfaldlega sprungið og logar staðið út úr þeim“.

„Sterk lykt af bensíni gaus upp og nokkrum mínútum síðar sagði flugstjórinn okkur að búa okkur undir högg.“ Þá segir hann að allir  hafi byrjað að biðja á meðan fólkið horfði á vatnið. „Við héldum að við ættum séns,“ segir hann, „af því að þarna var vatn.“

Hætta af fuglum

Stórar farþegaþotur þola að 1,8 kg fugl lendi á þeim en vandræði geta skapast ef stór hópur af litlum fuglum lenda í hreyflum þeirra eða stærri fuglar. 219 manns hafa látist í heiminum öllum frá árinu  1988 eftir slík tilvik.

Heimild: Bird Strike Committee USA

Flugmaðurinn Chesley Sullenberger.

Flugmaðurinn Chesley Sullenberger.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.

Vill skera upp herör gegn mafíunni

19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »
Mynd úr safni.

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hyundai Tucson til sölu
Til sölu Hyundai Tucson nýskr. 29.10.2004. Sjálfskiptur, dráttarkrókur, bensín, ...
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla sem hentaði ekki viðkomandi einstaklingi. Verð: 295.0...
Til sölu Porsche Boxster
Til sölu Porsche Boxster Árgerð: 2000 Ekin: 112 þús Flottur og í góðu ástand...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
 
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Sölumaður / skjalagerð
Sérfræðistörf
Fasteignasala Rótgróin og traust fasteig...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...