Árásum á Gaza víða mótmælt

Frá mótmælum í París í dag stækka

Frá mótmælum í París í dag Reuters

Árásum Ísraela á Gaza var víða mótmælt í Evrópu í dag. Á morgun verður haldinn mótmælafundur í Háskólabíói þar sem árásunum verður mótmælt en talið er að yfir 1.200 Palestínumenn hafi fallið í árásunum, þar af rúmlega 400 börn.

Í París komu um 2.600 manns saman til að mótmæla og voru margir með palestínska fánann. Beitti lögregla táragasi á mótmælendur þegar þeir reyndu að komast inn í Garnier óperuna. Nokkrir voru handteknir.

Það var mótmælt víðar í Frakklandi, meðal annars í borginni Marseille þar sem Mustapha Mohammadi, leiðtogi friðarsamtakanna Frakkland Palestína, sagði að fjöldamorðin á Gaza væru framin fyrir framan myndavélarnar með þöglu samþykki Bandaríkjanna og ýmissa Evrópuþjóða. 

Í Lundúnum komu um 3.500 manns saman á Trafalgar torgi og var yfirskrift mótmælanna „Mótmæli gegn níðingsverkum Ísraela og stríðsglæpum". Hvöttu ræðumenn bresk stjórnvöld til þess að kalla sendiherra landsins heim frá Tel Aviv.

Í Tyrklandi beindust mótmælin gegn Banaríkjunum, helsta bandamanni Ísraela. Söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Ankara.  

Í Bosníu kom einnig fjöldi fólks saman til að mótmæla árásum Ísraela og líktu mótmælendur aðgerðum Ísraela við það sem bosníska þjóðin þurfti að þola á tíunda áratugnum. 

Í Genf í Sviss komu hundruð mótmælenda saman fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Evrópu. Tók fjöldi barna þátt í mótmælunum í Genf. Hins vegar mættu um 1.500 manns á fund í Bern til þess að lýsa yfir stuðningi við árásir Ísraela.

Í Aþenu, höfuðborg Grikklands mættu um 1.000 manns og tóku þátt í mótmælum fyrir utan sendiráð Ísraela.  


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.

Vill skera upp herör gegn mafíunni

19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »
Mynd úr safni.

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
 
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...