Rússar hættir við eldflaugnakerfi í Kaliningrad
Rússneska Interfax-fréttastofan greinir frá því að stjórnvöld í Moskvu muni falla frá hótunum sínum um að koma upp kjarnorkueldflaugum nálægt pólsku landamærunum. Hefur fréttastofan þetta eftir nafnlausum heimildarmönnum í aðalherstjórn landsins, að sögn AP-fréttastofunnar, sem segir að varnarmálaráðuneytið hafi ekki viljað tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í morgun.
Dmitry Medvedev sagði á síðasta ári að Rússar mundu koma sér upp Iskander-eldflaugum í Kaliningrad við Eystrasalt héldi Bandaríkjastjórn því til streitu að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi. Sögðu Rússar að eldflaugakerfi af þessu tagi græfi undan vörum Rússa.
Interfax vitnaði í yfirmann í hernum sem sagði Iskander-áætlunin yrði nú söltuð þar sem hin nýja ríkisstjórn Bandaríkjanna myndi falla frá fyrri áformum.
Fjallað er um málið á vef breska blaðsins The Guardian sem túlkar ákvörðun Rússa sem merki um að þeir vilji bæta samskiptin við hin nýju stjórnvöld í Washington.
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að hin umdeilu áform varnarmálaráðuneytisins í Pentagon um eldflaugavarnir í Mið-Evrópu skuli tekin til endurskoðunar.
Ráðamönnum í Kreml hafi verið stórlega misboðið með áformum Bush-stjórnarinnar um að koma upp eldflaugavörnum og ratsjám í Póllandi og Tékklandi.
Rússar hafa talið á þessi áform raska kjarnorkuvopnajafnvæginu í Evrópu og þau beinist að Rússlandi meðan Bush-stjórnin hélt því jafnan fram að áætlunin væri ætluð til varnar gegn ógn frá Íran.
Obama hefur ekki gert upp hug sinn hvort áætluninni verður fram haldið eða hún lögð til hliðar, en hann er sagður hafa efasemdir um gildi hennar.
The Guardian segir að líta megi á yfirlýsingar sem vináttuvott gagnvart nýjum stjórnvöldum í Bandaríkjunum en um leið sem herbragð til að fá þau til að falla frá áförmum um að koma upp „eldflaugnavarnarskildi“ eins og þetta hefur verið kallað, í Mið-Evrópu.
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. september 2009, Erlent Rússar fagna ákvörðuninni
- Mánudagur, 18. ágúst 2008, Erlent Kjarnorkuvopn við Eystrasalt
- Sunnudagur, 23. nóvember 2008, Erlent Biðja Obama að hætta við
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Erlent Bandarísk hlutabréf eru sögð of dýr
- Miðvikudagur, 28. janúar 2009, Erlent Rússar hætta við eldflaugar í Kalíningrad
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum



































