Kvikasilfrið mikil umhverfisógn
Norsk stjórnvöld ætla að ná upp kafbáti þriðja ríkisins sem hlaðinn var kvikasilfri og var sökkt við Noregsstrendur 1945. Mikil umhverfisógn þykir nú stafa af farmi kafbátsins. Stefnt er að björgun flaksins árið 2010.
„Sú staðreynd að það eru 67 tonn af kvikasilfri í bátsflakinu veldur mikilli ógn við umhverfið,“ sagði Helga Pedersen, sjávarútvegsráðherra Noregs, í viðtali við AFP. „Við tókum þessa ákvörðun með tilliti til umhverfisins, fiskimanna og íbúanna.“
Þýski kafbáturinn U-864 varð fyrir tundurskeyti í Norðursjó 9. febrúar 1945. Tundurskeytinu skaut breski kafbáturinn HMS Venture. Þýski kafbáturinn var á leið til Japans, bandamanna Þjóðverja, og átti að nota kvikasilfrið til hergagnagerðar. Um borð voru einnig teikningar að nýrri þýskri orrustuþotu, Messerscmitt Me 262. Allir í áhöfn kafbátsins, 73 sjóliðar, fórust.
Kafbátsflakið liggur nú í tveimur hlutum á 150 metra dýpi um 3,7 km frá eynni Fedje úti fyrir vesturströnd Noregs. Flakið fannst 2003 og hafa mörg kíló af kvikasilfri seitlað úr því á hverju ári. Þessi mengun hefur valdið íbúum í nágrenninu áhyggjum á áhrifunum á heilsu þeirra.
Hollenska fyrirtækið Mammoet hefur tekið að sér að lyfta flakinu af hafsbotni. Það bjargaði rússneska kafbátnum Kursk úr Barentshafi árið 2000. Björgunaraðgerðin er talin tæknilega flókin. Reiknað er með að hún verði gerð árið 2010. Áætlað er að björgunin kosti allt að milljarð norskra króna (tæpa 17 milljarða ÍKR), að sögn norskra fjölmiðla.
Norsk yfirvöld höfðu áður mælt með því að flakið yrði látið liggja á sínum stað en hulið kápu úr steinsteypu.
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 27. september 2009, Erlent Brostnir draumar á ný?
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum



































