Sarkozy ávarpar þjóðina í kvöld

Nicolas Sarkozy stækka

Nicolas Sarkozy Reuters

Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, ætlar að ávarpa frönsku þjóðina í kvöld. Verður ávarpinu sjónvarpað á besta tíma en mikil reiði ríkir í frönsku þjóðfélagi með efnahagsástandið. Fyrir viku síðan tóku milljónir launþega þátt í verkföllum víðsvegar um Frakkland og var nánast allt athafnalíf landsins lamað í einn dag. Er áætlað að lengd ávarpsins sé 90 mínútur.

Yfir tvær milljónir Frakka voru án atvinnu í október og þeim fjölgar stöðugt. Sarkozy hefur reitt sig á björgunarpakka upp á 26 milljarða evra til þess að snúa efnahagsástandinu í betri farveg. Hann er hins vegar harðlega gagnrýndir fyrir að beina allri athyglinni að viðskiptalífinu á meðan ekkert sé gert fyrir heimilin í landinu.

Vinsældir Sarkozy hrapa á sama tíma og mælist hann nú með stuðning 39% frönsku þjóðarinnar og hefur hann aldrei verið jafn óvinsæll síðan hann tók við embætti.Launþegasamtökin hóta áframhaldandi verkfallsaðgerðum ef Sarkozy breytir ekki um stefnu í aðgerðum vegna efnahagskreppunnar. Vonast Sarkozy til þess að með ávarpinu takist honum að róa almenning niður en ýmsir óttast að stutt sé í að upp úr sjóði. Telja stjórnmálaskýrendur að Sarkozy muni ekki boða nein úrræði í ávarpi sínu í kvöld heldur reyna að verja þær aðgerðir sem þegar hefur verið boðað til.

Ávarpi forsetans verður sjónvarpað klukkan 19:15 að íslenskum tíma og verður það sýnt á þremur frönskum sjónvarpsstöðvum auk útvarps.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Ráðlagt að undirbúa sig fyrir brotthvarf Grikkja

20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »
Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.

Romney lofar minna atvinnuleysi

19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bumbo barnastóll
Lítið notaður Bumbo barnastóll til sölu á hálfvirði. Upplýsingar í síma 862 30...
Ökukennsla - Bíll - Mótorhjól - Akstursmat - Endurtökupróf
Kenni á Mercedes Benz C180, frábæran kennslubíl. Mótorhjólakennslan fer fram mið...
125 cc PitBike
Til sölu lítið notað X-motos PitBike árg. 2008. verð 70 þús! Baldur 848-6972...
Gistiheimilið Sjónarhóll í Stykkishólmi!
ERUM BÚIN AÐ OPNA! ALLAR UPPLÝSINGAR Á www.hostelstykkisholmur.is EÐA Í info@ho...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...