Obama staðfestir aðgerðaráætlun

Obama undirritaði lögin í Denver í dag.
Obama undirritaði lögin í Denver í dag. AP

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur staðfest 787 milljarða dala aðgerðaráætlun, sem ætlað er að blása lífi í bandarískan efnahag, með undirritun sinni.  

Obama hefur barist hart fyrir því að fá þessu framgengt, en Bandaríkjaþing samþykkti aðgerðarpakkann í síðustu viku. Obama, sem undirritaði lögin í Denver, segir að þetta sé „yfirgripsmestu efnahagsbjörgunaraðgerðir í sögunni.“

Enginn úr röðum repúblikana í fulltrúardeild Bandaríkjaþings studdi áætlunina og aðeins þrír í öldungadeildinni.

Repúblikanar segja að skattalækkanirnar muni ekki duga til, og að hagkerfið muni bera þungan skuldaklafa um ókomna framtíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert