Argentína vísar umdeildum biskupi úr landi
Argentínsk stjórnvöld hafa gefið kaþólska biskupnum, Richard Willamson, tíu daga frest til að yfirgefa landið en að öðrum kosti verði honum vísað úr landi. Biskupinn hefur valdið miklu uppnámi innan kirkjunnar eftir að páfi aflétti af honum og þremur öðrum ofuríhaldssömum biskupum bannfæringu um svipað leyti og Williamson afneitaði helför guðinga í sjónvarpsviðtali.
Í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni tiltekur innanríkisráðuneytið bæði afneitun Williamson á helförinni og eins að hann hafi verið í landinu undir fölsku flaggi, þ.e. skráð sig sem starfsmann frjálsra félagasamtaka en ekki sem kirkjunarmann. Williamson hefur verið í Argentínu undanfarið og stýrt þar prestaskóla, að því fram kemur í The Guardian í dag.
Samtök gyðinga hafa fagnað ákvörðuninni. Talsmaður samtakanna Amia hefur sagt að skoðanir Williamson „raski borgaralegu jafnvægi og félagslegri sátt sem landið þarf svo mjög á að halda.“
Williamson, sem er fæddur í Bretlandi, hefur verið í miðju harðrar deilu innan kaþólsku kirkjunnar eftir að Benedikt páfi aflétti bannfæringu af honum og fleiri félögum í ofuríhaldssömum klofningsarmi sem kallast Samtök Sánkti Píusar X (SSPX) til að friðmælast við þá.
Sú ákvörðun hefur komið Benedikt páfa og páfagarði öllum í hin mestu vandræði, ekki síst í Þýskalandi og hjá ýmsum samtökum gyðinga, en ummælin sem Williamson lét nýverið falla í Svíþjóð fólu í sér að ekki hefðu verið til neinir gasklefar nasista og og fjöldi gyðinga sem drepnir voru í síðari heimsstyrjöldinni væru 300 þúsund fremur en 6 milljónir.
Mótmælin skóku Vatíkanið og settu heimsókn páfa til Ísrael í uppnám. Til að bæta fyrir skaðann kallaði páfi fyrir sig leiðtoga gyðinga í Róm og sagði þar að tilraun nasista til að þurrka út gyðinga í Evrópu hefði verið „glæpur gegn guði“.
Hann kvaðst ekki hafa vitað um skoðanir Williamson og hefði fyrirskipað honum að endurskoða þær.
Williamson, sem á bloggsíðu sinni kallar sig „risaeðlu“, hefur svaraði því til að hann muni nú fara á ný yfir söguleg gögn um helförina og leiðrétta sig finni hann sönnunargögn þar að lútandi en það muni óhjákvæmilega taka tíma. Það er nú ljóst að sú rannsóknarvinna mun fara fram í öðru landi.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Afneitun sögulegra staðreynda er engin kaþólska -
Páll Jónsson Hvern á maður að fyrirlíta mest
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. mars 2009, Erlent Páfi: Verðum að fylgjast með netinu
- Miðvikudagur, 4. febrúar 2009, Erlent Páfagarður herðir skilyrði fyrir því að aflétta bannfæringu
- Sunnudagur, 15. febrúar 2009, Erlent Páfi til Landsins helga í maí
- Föstudagur, 27. febrúar 2009, Erlent Páfagarður neitar að taka afsökunarbeiðni biskups gilda
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Erlent Umdeildur biskup rekinn úr starfi rektors
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum



































