Mannskætt námuslys í Kína

Björgunarmenn hlaupa niður í námurnar til að bjarga þeim verkamönnum sem hægt er. stækka

Björgunarmenn hlaupa niður í námurnar til að bjarga þeim verkamönnum sem hægt er. Reuters

Að minnsta kosti 73 námuverkamenn létust og 1133 voru fluttir á sjúkrahús eftir að gassprenging varð í kolanámu í norðurhluta Kína í nótt. Enn brennur í námunni þar sem tugir manna eru innilokaðir.

Kínverskar námur eru taldar með þeim hættulegustu í heimi því yfir 3.000 manns farast árlega við störf í þeim vegna eldsvoða, flóða og sprenginga. Sprengingin í nótt varð þegar 436 námuverkamenn voru í Tunlan kolanámunni í borginni Gujiano sem er í Shanxi héraði, ekki fjarri höfuðstaðnum Taiyuan.

Af þeim 113 sem fluttir voru á spítala eru 21 sem eru taldir í lífshættu, að sögn Xinhua fréttastofunnar í Kína. Í frétt hennar kom ekki fram hversu margir væru enn lokaðir inni í námunni en áður hafði komið fram að a.m.k. 65 manns væru enn neðanjarðar.

Ríkissjónvarpsstöðin CCTV sýndi myndir af björgunarmönnum á leið inn í lyftu sem flytja átti þá niður í námugöngin á meðan sjá mátti aðra koma út úr námunni berandi námumenn á börum í átt að sjúkrabílum sem biðu þeirra.

Nærri 100 björgunarmenn voru á staðnum en eldur sem enn logar í göngunum aftrar vinnu þeirra. Hinir særðu eru haldnir reyk- og kolefniseitrun, sem getur leitt til dauða.

Náman er í eigu Shanxi Coking Coal Group, sem er einn stærsti framleiðandi svokallaðra sindurkola í Kína sem notuð eru í stáliðnaði. Fyrirtækið er með 28 námur á sínum snærum. Engin slys hafa orðið í Tunlan námunni síðasta áratuginn en náman framleiðir 5 milljónir tonna af sindurkolum árlega.

Í fyrra var yfir 1.000 litlum námum lokað í Kína í því skyni að draga úr námuslysum. Engu að síður eru námuiðnaðurinn í landinu sá mannskæðasti í heimi. Um 3.200 manns létust í námuslysum í fyrra, sem er um 15% færri dauðsföll en árið á undan. Mikill munur er þó á öryggi í námunum. Stórar ríkisnámur hafa öryggisstaðla sem nálgast þá sem gerðir eru í þróuðum ríkjum á meðan minni námur hafa lítil sem engin öryggistiltök og þar er þjálfun verkamannanna einnig í lágmarki.

Opinberar tölur sýna að nærri 80 prósent þeirra 16 þúsund náma sem eru í Kína eru lítil, ólögleg fyrirtæki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »
Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden myndskeið

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HARMONIKKUHURÐIR - FELLIHURÐIR
Bæði með og án glugga. Hringdu inn málin, hurðin getur verið tilbúinn samdægurs....
VILTU VITA HVAÐ ER FRAMUNDAN ?
Spái í bolla og tarot- þeir sem farnir eru segja mer um framtíð þína. Timap. s. ...
Hæðarkíkir - þrífótur - stika
Til sölu hæðarkíkir Leica Runner 20, þrífótur og stika. Verð 40000...
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...