Mannréttindum hrakað í Kína

Hillary Clinton hitti Hu Jintao Kínaforseta að máli um síðustu helgi. stækka

Hillary Clinton hitti Hu Jintao Kínaforseta að máli um síðustu helgi. Reuters

Mannréttindum hrakaði í Kína á árinu sem leið þrátt fyrir Ólympíuleikana í Peking. Andstæðingar stjórnarinnar voru kúgaðir sem og sjálfstæðissinnar í Tíbet. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins. 

Niðurstaðan vekur athygli, ekki síst fyrir þá röksemd að leikarnir myndu auka samskipti landsmanna við umheiminn og því vera liður að færa Kína nær vestrænum ríkjum í þessu tilliti.

Í skýrslunni, þar sem einnig er vikið að mannréttindum í öðrum ríkjum, segir að kínversk stjórnvöld hafi staðið fyrir aftökum án dóms og laga og þvinguðum játningum með pyntingum. Þá hafi frjálsir einstaklingar verið neyddir til vinnu.

Þá eru menning og trú minnihlutahópa bæld niður, einkum á meðal múslíma í Xinjiang-héraði og í Tíbet.

Þessi kúgun hafi náð hámarki þegar átökin stóðu yfir í Tíbet fyrir tæpu ári og á meðan leikarnir stóðu.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór í opinbera heimsókn til Kína um síðustu helgi og lét þar þau orð falla að samvinna ríkjanna í öryggis-, loftslags- og efnahagsmálum væri ágreiningi um mannréttindi yfirsterkari.

Clinton hitti í heimsókn sinni Hu Jintao Kínaforseta, Wen Jiabao forsætisráðherra og Yang Jiechi utanríkisráðherra og snerust viðræður þeirra öðrum þræði um leiðir til að auka samvinnu ríkjanna í efnahags-, öryggis- og loftslagsmálum.

Taldi Clinton þessa málaflokka svo brýna að ágreiningur um sjálfstæði Taívans og Tíbets og stöðu mannréttindamála í Kína mætti ekki raska samvinnu stórveldanna á þessum sviðum.

Þakkar traust Kínverja á skuldabréfunum 

Þakkaði Clinton við það tækifæri Kínverjum sérstaklega fyrir auðsýnt traust gagnvart bandarískum skuldabréfum, en frekari útgáfa þeirra er liður í fjármögnun Bandaríkjastjórnar á hundraða milljarða dala viðreisnaráætlun hagkerfisins.

„Við munum svo sannarlega rísa upp eða falla í sameiningu. Við erum á sama báti og róum nú sem betur fer í sömu áttina,“ sagði Clinton, sem taldi bæði ríkin háð því að takast myndi að koma bandarísku efnahagslífi í gang.

Clinton notaði einnig tímann til að skoða kolaorkuver í Peking þar sem leitast er við að lágmarka losun koldíoxíðs og til að sækja messu í kirkju í eigu kínverska ríkisins. Um 40 milljónir Kínverja eru skráðir kristnir og gerir stjórnin þær væntingar til hópsins að hann iðki trú sína í ríkisreknum og þjóðhollum kirkjum þar sem prestar eru valdir af yfirvöldum.

Þá átti Clinton viðræður við konur sem berjast fyrir auknum réttindum kvenna, auk þess að taka þátt í stuttu netspjalli við kínverska þegna.

Mikið vatn runnið til sjávar 

Fjallað var um heimsókn Clinton í dagblaðinu New York Times með þeim orðum að mikið vatn hafi runnið til sjávar frá því hún flutti sem forsetafrú fyrirlestur á ráðstefnu í Peking árið 1995, þar sem hún dró ekki dul á gagnrýna afstöðu sína til mannréttindastöðu kvenna í Kína.

Yang utanríkisráðherra vék í heimsókinni að mannréttindum í Kína og lét við það tækifæri þau orð falla að „brosmild andlit“ kínversku þjóðarinnar vitnuðu um að staða þeirra mála væri góð.

Kínversk mannréttindasamtök tóku annan pól í hæðina og sögðu lögregluna í Peking hafa meinað hluta mótmælenda að yfirgefa heimili sín. Aðrir hefðu einnig verið undir ströngu eftirliti.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »
Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
Í gær, 14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
Í gær, 13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
Í gær, 14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
Í gær, 14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden myndskeið

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
Í gær, 12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BENZ JEPPI ML 430 skoða skipti
Til sölu MERCEDES BENZ ML 430 árg.'99 ek.117 þúsund mílur Sjálfskiptur, leður, l...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA - ERTU BÚIN AÐ KÍ...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Burðarsjöl og burðarpokar í miklu úrvali. Henta börnum frá fæðingu til þriggj...
NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR TRJÁKLIPPINGAR
Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar...
 
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sölumaður / skjalagerð
Sérfræðistörf
Fasteignasala Rótgróin og traust fasteig...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Til leigu í lágmúla

Til leigu er 75 m² skrifstofuhúsnæði í...