Netanyahu og Barak semja
Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likud-flokksins í Ísrael, og Ehud Barak, leiðtogi Verkamannaflokksins, hafa náð samkomulagi um stjórnarsamstarf. Það er þó háð samþykki stofnana Verkamannaflokksins. Boðað hefur verið til fundar í miðstjórn flokksins í dag til að fjalla um málið og er ljóst að skoðanir verða þar afar skiptar.
Verkamannaflokkurinn mun fá fimm ráðherraembætti í stjórn Netanyahus samkvæmt samkomulaginu og verður Barak áfram varnarmálaráðherra eins og hann hefur verið í stjórn Kadima-flokksins og Verkamannaflokksins, sem verið hefur við völd undanfarin ár.
Netanyahu hefur áður náð samkomulagi við tvo flokka yst á hægri væng ísraelskra stjórnmála um myndun samsteypustjórnar.
Samkomulag Likud og Verkamannaflokksins felur í sér, að sögn ísraelska útvarpsins, að haldið verður áfram friðarumleitunum við Palestínumenn og fyrri samningar verða virtir. Þá mun stjórnin einnig sporna gegn óskipulaðri landtöku Ísraelsmanna á Vesturbakkanum.
Verkamannaflokkurinn, sem áður var helsta aflið í ísraelskum stjórnmálum, beið afhroð í þingkosningum í febrúar. Líklegt er að flokksmenn muni ekki allir taka því fagnandi, að flokkurinn fari í stjórnarsamstarf við Likud-flokkinn.
Flokkarnir fjórir, sem nú hafa náð samkomulagi um ríkisstjórn, ráða samtals 66 þingsætum á ísraelska þinginu af 120. Likudflokkurinn hefur 27 þingsæti, Yisrael Beitenu, sem er flokkur öfgasinnaðra þjóðernissinna, hefur 15 þingsæti, Shas-flokkurinn, sem er flokkur strangtrúaðra gyðinga, 11 þingsæti og Verkamannaflokkurinn 13 þingsæti.
Að minnsta kosti 7 þingmenn Verkamannaflokksins eru andvígir stjórnarsamstarfi við Likud-flokkinn og þeir lýstu andstöðu við að flokkurinn tæki upp viðræður við Netanyahu. Barak sagði hins vegar í síðustu viku, að það samræmdist hagsmunum Ísraelsmanna og kjósenda flokksins aðtaka þátt í ríkisstjórn.
Meðal andstæðinga stjórnarsamstarfsins eru Eitan Cabel, framkvæmdastjóri Verkamannaflokksins, og Amir Peretz, fyrrum flokksleiðtogi. Hafa þeir sagt, að ríkisstjórnin gæti ekki reitt sig á stuðning þeirra á ísraelska þinginu.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Erlent Netanyahu vinsælastur í Ísrael
- Mánudagur, 22. september 2008, Erlent Reynt að mynda stjórn í Ísrael
- Mánudagur, 22. september 2008, Erlent Livni boðið að mynda stjórn
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Erlent Netanyahu ræðir við Barak
- Þriðjudagur, 24. mars 2009, Erlent Verkamannaflokkurinn samþykkti stjórnarsamstarf
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































